Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1978, Síða 66

Andvari - 01.01.1978, Síða 66
64 HERMANN PÁLSSON ANDVARI lýst, en þó eru frávikin ekki síður eftirtektarverð. Hrafnkell hefur glögg einkenni ójafnaðarmanna, þótt honum sé einnig vel farið að sumu leyti: Hann ,,var ójafnaðarmaður mikill, en menntur vel; hann þröngdi undir sig Jökuldalsmönnum til þingmanna hans, var linur og blíður við sína menn, en stríður og stirðlyndur við Jökuldalsmenn og fengu af honum engan jafnað. Hrafnkell stóð mjög í einvígum og bætti engan mann fé, því að enginn fékk af honum neinar bætur, hvað sem hann gerði.“ Nú gerist það, að Hrafnkell vegur ungan smalamann sinn, saklausan, og þá fer faðir hins vegna á fund Hrafnkels og biður hann bóta. „Hrafnkell kvaðst fleiri menn hafa drepið en þennan einn, „er þér það eigi ókunnugt, að ég vil öngva menn fé bæta, og verða menn þó svo búið að hafa; en þó læt ég svo sem þetta verk þykir mér í verra lagi unnið vera þeirra er ég hefi unnið. Hefir þú verið nábúi minn langa stund, og hefir mér líkað vel til þín og hvorum til annars. Mundi okkur Einari ekki hafa annað sundur borið af, ef hann hefði eigi riðið hestinum. En vér megum þess oft iðrast, að vér erum ofmálgir, og sjaldnar mundum vér þess iðrast, þótt vér mæltum færra en fleira. Mun ég það nú sýna, að mér þykir þetta verk unnið verra en önnur þau, er ég hefi unnið. Ég vil birgja bú þitt að málnytu í sumar, en slátrum í haust. Svo vil ég gera við þig hvert misseri, meðan þú vilt búa. Sonu þína og dætur skulum við á brott leysa með minni forsjá og efla þau svo, að þau mætti fá góða kosti af. Allt það er þú veizt í mínum híbýlum vera héðan af, þá skaltu mér til segja og eigi fyrir það skort líða héðan af, og þá hluti sem þú þarft að hafa. Skaltu búa, meðan þér þykir gaman að, en far þá hingað, er þér leiðist; mun ég þá annast þig til dauðadags. Skul- um við þá vera sáttir. Vil ég það vitna, að það munu flestir mæla, að sá maður er vel dýr.“ Ræða Hrafnkels er einstæð í sögunum, og sýnir hún betri hliðina á honum („var menntur vel ... linur og blíður við sína menn“) enda bjóða aðrir ójafnaðarmenn engar bætur, heldur hreyta þeir ónotum í þá, sem beiðast þeirra: Styr í Heiðarvíga sögu býður grátt lamb í bætur, Þorbjörn í Hávarðar sögu afgamlan og baksáran hest, Þorbjörn í Króka-Refs sögu hníf og brýni með ögrunarorðunum „Deigan skal deigum bjóða.“ Hins vegar vill Hrafnkell bæta það, sem hann hefur misgert: hon- um þykir vígið illt, hann hefur umhyggju fyrir nábúa sínum, iðrast verks- ins, býður rausnarleg boð og sýnir raunar mikla samúð með föður hins vegna. Þorbjörn, sem er maður heimskur, áttar sig ekki á hlutunum eins og þeir eru og sýnir af sér ranglæti með því að krefjast þess, að málið sé lagt í gerð. Nú tekur Sámur eftirmálið að sér, og með hjálp Þjóstarssona er Hrafnkell gerður sekur, sviptur eignum og völdum, pyndaður og hrak- inn brott úr héraði. Þá vilja Þjóstarssynir, að Hrafnkell sé tekinn af lífi, en Sámur ber umhyggju fyrir sonum Hrafnkels (eins og Hrafnkell sjálfur bar fyrir börnum Þorbjarnar) og vill gefa honum líf. En Þorkell Þjóstars-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.