Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1978, Side 84

Andvari - 01.01.1978, Side 84
82 AKl GISLASON ANDVARI því þeir eru hræddir við allt, halda að það dragi eitthvað frá sjer.“1) Hluta- bréfasala gekk treglega, en að henni var unnið fyrri hluta árs 1885. Skúli tók þá til bragðs að panta prenttækin, þótt ekki hefði safnazt nægilegt fé, en lagði út þá peninga sjálfur, sem á vantaði. 17. sept. 1885 segir Skúli í bréfi til Þorleifs Jónssonar póstmeistara, að handpressan sé komin frá Danmörku til Isafjarðar með skipinu Thyru.2) Pressan var kom- in til ára sinna, 40-50 ára gömul.3) Hluíhafar héldu undirbúningsfund síðasta dag októbermánaðar 1885. Bráðabirgðastjórn var kosin, og skyldi hún semja frumvarp að lögum fyrir væntanlegt prentfélag. 1 byrjun næsta árs, 13. marz 1886, var stofnfundurinn haldinn, og nefndist félagið Prentfélag Isfirðinga. Hluthafar á fundinum voru 29. I stjórn félagsins voru kosnir séra Sigurður Stefánsson, Skúli Thoroddsen og Þorvaldur Jónsson prófastur. A fund- inum voru samþykkt lög félagsins. Um markmið félagsins segir í 3. grein: „Að- altilgangur félagsins er með eign og við- haldi prentsmiðju á ísafirði að halda úti blaði til þess að efla almenna menntun og framfarir." Þótt prentfélagið væri stofnað og því sett lög, þá vantaði enn leyfi yfirvalda fyrir starfseminni. Til þess að starfrækja prentsmiðju þurfti konungsleyfi, og hafði Skúli sótt um það í janúar 1886, áður en félagið var stofnað. Umsóknin var send til Magnúsar Stephensens, þá amtmanns. Jón Pétursson dómstjóri gegndi um þetta leyti embætti lands- höfðingja, eftir lát Bergs Thorbergs. Fékk Jón erindi Skúla til umsagnar frá amtmanni, en taldi sig ekki geta mælt með því. Stuttu seinna, 10. apríl, var Magnús Stephensen skipaður lands- höfðingi, og leit þá ekki vel út með prentsmiðjuleyfið, því að vitað var, að hann var því andvígur. Yfirvöldin færðu fram þau rök, að illa færi á því, að lögreglustjóri - en því embætti gegndi Skúli -, sem ætti að hafa eftirlit með prentfrelsislögunum, væri viðriðinn prentsmiðjuna. Stjórn félagsins lagði ekki árar í bát og ákvað að endurnýja ósk um prentsmiðjuleyfi, og var Þor- valdi Jónssyni prófasti, sem var í stjórn prentfélagsins, falið að senda konungi umsóknina, og gerir hann það 22. marz. Beiðnin kom til álita hjá Magnúsi lands- höfðingja, sem sendi hana utan til ís- landsráðherra í byrjun júnímánaðar ásamt umsögn sinni.4) Á aukaþinginu 1886 var borin frarn fyrirspurn frá Sig- urði Stefánssyni og Þorleifi Jónssyni vegna dráttar á veitingu prentsmiðju- leyfisins. 19. ágúst 1886 var leyfið loks- ins veitt. í bréfi, sem Nellemann, er fór með málefni Islands, skrifaði landshöfð- ingja 19. ágúst, kom fram, að ráðuneyt- inu þótti óhæft, að sýslumaður, eða sá sem gætti laga og réttar, væri jafnframt ábyrgðarmaður stjórnmálablaðs, en hins vegar væri ekki hægt að átelja það, þótt yfirvaldið ætti hlut að stjórn prentfélags. Þannig lauk þessari togstreitu með sigri stjórnar prentfélagsins.5) Að fengnu konungsleyfi hóf prent- félagið brátt blaðaútgáfu. Blaðið var kallað Þjóðviljinn, og var það Sigurður Stefánsson, er stakk upp á nafninu. Fyrsta tölublaðið kom út 30. október 1886, árið sem félagið var stofnað. Prentsmiðjan var kölluð Prentsmiðja Isafjarðar. Þjóðviljinn var frá byrjun í andstöðu við landshöfðingjavaldið. Endurskoðun stjórnarskrárinnar var eitt helzta bar- áttumál blaðsins, og var Skúli í hópi þeirra, er lengst vildu ganga í því máli. Almenn mannréttindi voru Skúla mikið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.