Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 89

Andvari - 01.01.1978, Page 89
ANDVARI BESSASTAÐAPRENTSMIÐJA OG BLAÐAÚIGAFA SKÚLA THORODDSENS 87 2. Prentsmiðjur og blöð Til glöggvunar verður hér minnzt á helztu prentsmiðjur og blöð samtíma Bessastaðaprentsmiðju. Þegar Skúli Thoroddsen fluttist til Bessastaða, var Isafoldarprentsmiðja helzta prentsmiðjan í Reykjavík. Hún hafði starfað frá árinu 1877. Þar var Isafold prentuð, og var Björn Jónsson ritstjóri blaðsins. Pólitísk áhrif Isafoid- ar voru mikil á þeim tíma. Blaðið var í andstöðu við Skúla í Skúlamálunum og studdi landshöfðingja eindregið. Samt voru þeir Björn og Skúli samherjar í stjórnmálabaráttunni á þeim tíma, þeg- ar Þjóðviljinn var prentaður á Bessa- stöðum. Þjóðólfsprentsmiðja var í eigu Hann- esar Þorsteinssonar frá því árið 1899. Hafði Einar Benediktsson stofnað hana árið 1896. Blaðið Þjóðólfur var prent- að í Þjóðólfsprentsmiðju. Hannes var eigandi blaðsins, og hafði hann keypt það 1891 og tók við því í ársbyrjun 1892. Hannes átti Þjóðólf allt til árs- loka 1909. Hann studdi Skúla í Skúla- málunum, en seinna meir verða þeir Hannes og Skúli andstæðingar í stjórn- málunum. Árið 1906 keypti Gutenberg Þjóðólfsprentsmiðju, og var Þjóðólfur síðan prentaður þar. Félagsprentsmiðjan var önnur aðal- prentsmiðjan í Reykjavík, þegar Skúli fluttist suður. Prentsmiðjan tók fyrst til starfa um áramótin 1883/1884. Var hún fyrst kennd við Sigmund Guðmundsson, sem hafði fengið leyfisbréf fyrir henni. Halldór Þórðarson bókbindari var stjórnandi prentsmiðjunnar frá 1890 til 1915. Fjallkonan var prentuð í Félags- prentsmiðjunni til áramóta 1901/1902. Valdimar Ásmundsson var útgefandi. Blaðið var vinsælt um aldamótin vegna á tímum Bessastaðaprents palladóma um alþingismenn og Alþing- isrímna, sem birtust þar. Valdimar féll frá 1902, og eftir það urðu tíð eigenda- og ritstjóraskipti á blaðinu. Landvarn- arblaðið Ingólfur, en útgáfa þess hófst 1903, var einnig prentað í Félagsprent- smiðjunni. Árið 1905 hóf Gutenberg starfsemi sína. Tækjabúnaður í Gutenberg var betri en í öðrum prentsmiðjum, er störf- uðu á þessum árum. Gutenberg keypti tvær prentsmiðjur, sem störfuðu í Reykjavík, en það voru Reykjavíkur- prentsmiðja, árið 1905, og Þjóðólfs- prentsmiðja árið 1906. Reykjavíkurprentsmiðja hóf starfsemi sína árið 1902. Þorvarður Þorvarðsson prentari stofnaði prentsmiðjuna. í prentsmiðjunni var Reykjavík prentað, en eftir að Gutenberg keypti prentsmiðj- una, var blaðið prentað þar. Árið 1901 keypti séra Lárus Halldórs- son Aldarprentsmiðju af Davíð Östlund. Var prentsmiðjan notuð til nótnaprent- unar. Árið 1904 flutti Davíð Östlund til Reykjavíkur prentsmiðju, er hann stofnaði á Seyðisfirði. Var blaðið Fræ- korn prentað í henni og prentsmiðjan því kölluð ýmist Östlundsprentsmiðja eða Frækorna. Prentsmiðja Hafnarfjarðar hóf starf- semi sína árið 1907. Var það Aldar- prentsmiðjan, sem hafði verið seld og flutt. Var blaðið Fjallkonan prentað í henni. Á Akureyri var starfrækt Prentsmiðja Björns Jónssonar, en hún á rætur að rekja til Prentsmiðju Norður- og Austur- umdæmis, sem stofnuð var 1852. Björn Jónsson stóð fyrir útgáfu blaðsins Stefn- is frá 1893-1905, en frá 1906 gaf hann út Norðra hinn yngra. Um aldamótin
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.