Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 95

Andvari - 01.01.1978, Page 95
ANDVARI bbssastaðaprentsmiðja og blaðaútgáfa skúla tiioroddsens 93 Gunnar Sigurðsson, sem var úr Djúpi. Skúli hafði allmikinn búskap á Bessa- stöðum og sléttaði töluvert land, en bú- ið mun ekki hafa borið sig, að talið er, enda þungt heimili. Töluvert kríuvarp var í Bessastaðalandi og einnig æðar- varp, og var það nokkuð nytjað.17) Þess má geta, að Skúli var mikill dýravinur, og aldrei var skotið úr byssu í Bessa- staðalandi, meðan Skúli réð þar ríkj- um, segir Unnur dóttir hans.18) Guð- björg Jafetsdóttir ráðskona hafði einnig verið hjá þeim Skúla og Theodóru vest- ur á Isafirði. Hún var bróðurdóttir Ingi- bjargar, konu Jóns Sigurðssonar for- seta. Guðbjörg annaðist heimilisstörf- in, einnig störf utanhúss, þegar Gunnar ráðsmaður var fjarverandi. Hún var trygg og dugleg og var alla tíð á heimil- inu. Hún var börnunum sem önnur móð- ir, segir Unnur Thoroddsen.10) Theodóra sinnti ekki bústörfum, en annaðist smá- krakkana. Arni Árnason frá Skildinganeskoti á Seltjarnarnesi, síðar læknir, er einn þeirra, sem gerðist heimiliskennari á Bessastöðum. Árni var þar veturinn 1905-1906 og las þá jafnframt undir stúdentspróf. Árni lýsir Skúla og segir, að hann hafi verið í hærra lagi, feitlag- inn, en samsvarað sér vel, með há koll- vik og afturgreitt hár. Hann var hæg- látur og ljúfmannlegur, en mjög fá- skiptinn. Hann borðaði einn á skrif- stofu sinni nema á hátíðum.20) Skúli skipti sér mjög lítið af sjálfum prentsmiðjurekstrinum, og hann kom sjaldan í prentsmiðjuna að sögn Sig- urðar prentara, en var góður húsbóndi. Skúli lét bústörfin lítið til sín taka. Hann sat tíðum á skrifstofu sinni og vann að Þjóðviljanum. Hófsmaður var hann, nema hvað hann tók mikið í nef- ið. Stóð tóbakskútur á borðinu með te- skeið í, en hann tók í nefið úr henni. Setti hann koníak í tóbakið til bragð- bætis. Skúli var áhugamaður um dulræn efni og spíritisma, eins og fram kemur í Þjóðviljanum og síðar verður vikið að. Það er því ekki úr vegi að minnast þess hér, að löngum er þess getið, að reimt hafi verið í Bessastaðahúsinu. Guð- mundur Thoroddsen læknir, sonur Skúla, getur þess í bernskuminningum frá Bessastöðum, að orð hafi legið á um reimleika og fyrir hafi komið, að einhver heimilismanna hafi þótzt hafa heyrt eða séð það sem aðrir urðu ekki varir við, „og hefur ekki þótt tiltökumál urn svo gamalt hús og stað, sem ætti sér slíka sögu sem Bessastaðir".21) Guð- mundur getur þess einnig, að drauga- sögur hafi verið mikið lesnar og sagðar. Margir gestir vöndu komur sínar til Bessastaða. Meðal þeirra má nefna Þor- stein Erlingsson og Steingrím Matthías- son lækni. Árni læknir minnist í því sambandi sérstaklega húsfreyjunnar frú Theodóru, sem var létt í lund. Hún var líka mjög bókhneigð og kunni feiknin öll af vísum og varð þjóðkunnur rit- höfundur fyrir þulur sínar og sögur. Eitt sinn kom til Bessastaða Guðmundur Finnbogason og með honum Guðrún Indriðadóttir og Hendrik Erlendsson, síðar læknir. Er kvöldaði, stakk Guð- mundur upp á því, að þau Theodóra kvæðust á, og var það gert lengi kvölds, og ekki þraut vísurnar. Guðmundur sagði að lokum, að Theodóra væri sú kona á íslandi, sem hann sízt vildi kveðast á við.22) Fleira var sér til gam- ans gert og dægrastyttingar. Þar má nefna leikstarfsemi í Prentinu. Það voru börn Skúla, sem gengust fyrir þessu, en einnig tóku vinnumenn og prentarar þátt í leiknum. Leikritin voru rnest
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.