Andvari - 01.01.1985, Page 13
ANDVARI
SIGURÐUR ÞÓRARINSSON
11
ingi kunna: „íslenzk tunga á bezt við í íslenzkum kaupstað, hvað allir
athugi!““ ’ Önnur kona Þórarins á Skjöldólfsstöðum var Þórey, systir sr.
Hjörleifs á Undirfelli, og var sr. Þórarinn á Valþjófsstað sonur þeirra.
Þórunn, þriðja kona hans, giftist aftur Arngrími Gíslasyni málara. í
þessari föðurætt Sigurðar Þórarinssonar eru margir smiðir og hagleiks-
menn.
Snjólaug Sigurðardóttir, móðir Sigurðar, var af svonefndri Krossa-
ætt, dótturdóttir Snjólaugar Baldvinsdóttur, prests á Upsum í Svarfað-
ardal, og Þorvalds bónda á Krossum á Árskógsströnd Gunnlaugssonar.
Snjólaug Baldvinsdóttir og Jónas Hallgrímsson skáld og náttúrufræð-
ingur voru bræðrabörn. Meðal 12 barna þeirra Snjólaugar og Þorvalds
á Krossum voru Snjólaug á Laxamýri, móðir Jóhanns Sigurjónssonar
skálds, og Soffía Jóhanna (f. 1850), amma Sigurðar Þórarinssonar.
Börn hennar og Sigurðar járnsmiðs á Akureyri voru Snjólaug, sem
giftist Þórarni Stefánssyni í Teigi, Þorvaldur og Vilhelmína.
Þegar Öskjugosið hófst hinn 29. marz 1875 bjuggu föðurforeldrar
Sigurðar, Stefán Þórarinsson og Margrét Björnsdóttir, í Fossgerði á
Jökuldal (nú Stuðlafoss), og var það þeirra fyrsti vetur þar. Við land-
auðn lá af öskufalli, og flúðu margir til annarra sveita, en hjónin í Foss-
gerði urðu að fresta för sinni því Margrét var þunguð að þriðja barni
þeirra. Hálfum öðrum mánuði síðar, 16. maí 1875, fæddist Þórarinn,
sonur þeirra, og þegar móðirin var orðin ferðafær fluttust þau norður
í Vopnafjörð. Var Járngerður, móðir Margrétar, fótgangandi og bar
Þórarin nýfæddan en Margrét reiddi Þórarin Björn á hesti; hann var þá
á öðru ári. Elzta barnið, Kristín, tæpra þriggja ára, var sett upp á
milli klyfja. Var sú ferð löng og ströng yfír Smjörvatnsheiði í Vopna-
fjörð. Þar fengu þau fyrsta árið skika úr Bustarfelli til ábúðar, næstu
tvö ár bjuggu þau á parti úr Fossi og bættist þar Elín í systkinahópinn.
Síðan fíuttust þau fram á heiði og bjuggu í Kálffelli í eitt ár, en vorið
1879 fluttust þau aftur niður í Hofsárdal að Teigi. Rétt á eftir dó
Margrét af barnsförum, þrítug að aldri, og barnið einnig. Varð ævi
þessarar ömmu Sigurðar Þórarinssonar því skömm, og mátti hún þola
hrakninga og mótlæti af völdum Öskjugossins, beint og óbeint. En
Sigurður átti einmitt eftir að lielga eldfjöllum, eldgosum og öskulögum
mestan part starfskrafta sinna.
Stefán kvæntist fljótlega aftur, Katrínu Gísladóttur, og eignuðust
þau sjö börn á tíu árum, en þrjú þeirra dóu í bernsku. Bjó Stefán í
Teigi þar til hann lézt 53 ára að aldri, árið 1900. Þórarinn sonur hans
varð búfræðingur frá Hvanneyri 1903 og var síðan kennari Vopna-
f jarðarhrepps 1903—12 og jafnframt ráðsmaður lijá sr. Sigurði Sívert-