Andvari - 01.01.1985, Page 21
ANDVARl
SIGURÐUR PÓRARINSSON
19
rannsóknum og styrkt þær á margan hátt, sumir greifar og barúnar
hafa gerst vísindamenn og háskólakennarar."14 Þorvaldur heimsótti
Svíþjóð í nóventber 1892 og fór m. a. í jarðfræðiferð með „Gerard de
Geer barúni“, síðar kennara Sigurðar Þórarinssonar, sem þá var ungur
maður. Héll Þorvaldur fyrirlestur um ísland í Landfræðifélaginu í
Stokkhólmi og þá dýrlega veizlu á eftir hjá fríherra Nordenskiöld,
frægum landkönnuði og svaðilfaramanni. Voru þar saman komnir
„um 100 boðsgestir, úrvalið af höfðingjum og vísindamönnum
Stockhólms.“ Meðal stórmennis í veizlu þessari, sem Þorvaldur nefnir,
var Sven Hedin Asíufari, sem þá var nýkominn frá ferðum í Persíu, og
átti eftir að verða heimsfrægur.
í þessum hópi frægðarmanna og vísindamanna gerðist Sigurður
aufúsumaður mikill. Gaf Lennart von Post honum nafnið „Skallagrím-
ur“, en undir því norn de guerre varð hann þekktur um öll Norðurlönd.
Sigurður varð fyrstur íslendinga eftir Þorvald Thoroddsen að flytja
fyrirlestur í Landfræðifélaginu, Sállskap för antropologi och geografl,
þar sem áðurnefndir Sven Hedin, de Geer, von Post og Ahlmann voru
meðal framámanna. Sæmdi félagið hann Vega-medalíu sinni 1970.
Kennarar Sigurðar höfðu hinar mestu mætur á honum, og leit Hans
Ahlmann snemma á hann sem verðugan arftaka sinn í jöklafræði.
Kynntist Sigurður þannig heiztu vísinda- og forystumönnum Svía, og
héldust þau kynni jafnan síðan. Þegar leið á námsdvöl Sigurðar í Sví-
þjóð var hann farinn að njóta mikils álits sem fræðimaður, og vegna
sambanda sinna við málsmetandi menn þar í landi gat hann einnig
beitt sér betur fyrir málstað annarra íslenzkra stúdenta. Segir Jónas
Haralz10 að honum hafi notazt vel sambönd sín og sem framámaður Is-
lendinga í Stokkhólmi rekið hagsmunamál þeirra öll af einurð og lagni.
Sigurður fékk vinnu við ritstjórn Bonniers Konversationslexikon árið
1941. Auk þess hafði hann nokkrar tekjur af ýmsum jarðfræðirann-
sóknum fyrir sænsku vegagerðina o. fl.
VIIÍ
Hinn 13. október 1939 gekk Sigurður að eiga Ingu Valborgu
Backlund, dóttur Svens Backlund og konu hans Hertu f. Bergström.
Sven Backlund gerðist ungur stærðfræðikennari í menntaskóla en
bætti því og varpaði sér út í baráttu jafnaðarmanna og verkalýðshreyf-
mgar í Svíþjóð. Var hann eldlegur ræðumaður og áróðursmaður og
barðist ekki sízt með góðum árangri fyrir aukinni vitund alþýðunnar í
utanríkismálum. Inga var þannig af stétt róttækra menntamanna. Hún