Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1985, Side 49

Andvari - 01.01.1985, Side 49
ANDVARI SIGURÐUR ÞÓRARINSSON 47 að vænta, að fleiri myndu brátt fylgja á eftir. Ég tel æskilegt,“ sagði hann, „nemendanna vegna, að kennslan í þessum greinum komist sem fyrst að langmestu leyti í hendur mér yngri manna. Við eigum nóg af ungum færum mönnum, og von mín er, að þegar búið er að koma þessu á einhvern viðunandi rekspöl, verði hægt að létta það á mér, að ég geti varið einhverjum verulegum tíma af því sem ég á eftir af minni starfsævi, — en það styttist óðum — til að vinna og skrifa það, sem ég tel mig eiga óunnið og óskrifað og tel mig hafa búið mig undir það vel, að ég ætti öðrum betur að geta unnið það.“48 Jafnframt lýsti hann því yfir í viðtalinu, og oft síðan, að stefna bæri að því að menn geti unnið hér heima að framhaldsrannsóknum og framhaldsnámi. Leit hann á stofn- un Norrænu eldfjallastöðvarinnar 1973 sem þátt í þeirri viðleitni. Sig- urður hafði verið meðal helztu hvatamanna að stofnun Eldfjallastöðv- arinnar, og þótti ýmsum sjálfsagt að hann yrði forstöðumaður hennar, en hann taldi betur fara á að yngri maður yrði fyrir valinu. Var Guð- mundur E. Sigvaldason þá ráðinn til starfsins, en Sigurður tók sæti í stjórn hennar og lét hag hennar sig miklu skipta. Formlegt framhalds- nám í raunvísindum er ekki enn komið á við Háskóla Islands, en á þessu ári (1985) varði Páll Imsland jarðfræðingur doktorsritgerð við háskólann, og er hann fyrsti nemandi verkfræði- og raunvísindadeild- ar, sem numið hefur fræði sín að öllu leyti við Háskóla Islands allt til doktorsprófs. Vann Páll rannsóknaverkefni sitt á Eldijallastöðinni. Meðan Sigurður gegndi prófessorsembætti við háskólann sá hann um inngangsnámskeið í jarðfræði fyrir fyrsta árs nemendur. Naut hin yfirgripsmikla þekking hans sín vel í þeim fyrirlestrum, svo og rómuð fyrirlestratækni, enda voru þeir til þess fallnir að skapa áhuga og yfir- sýn yfir fræðin. Mega þeir nemendur, sem nutu kennslu Sigurðar við háskólann, kallast lukkunnar pamfílar að þessu leyti. í vetrarlok fór hann svo á ári hverju með hópinn í viku ferðalag um Suðurland, því náttúran er þrátt fyrir allt bezta kennslubókin. í þeiin ferðunt lagði Sig- urður jafnan áherzlu á mælingar ekki síður en lýsingu: öskusnið voru að sjálfsögðu mæld og túlkuð, og í þeirri einu ferð sem ég fór sem að- stoðarmaður hans er mér minnisstætt að hann lét nemendur gera töl- fræðilega úttekt á lögun stuðlanna í Kirkjugólfi á Síðu — hversu margir eru sexhyrndir, fimmhyrndir, ferhyrndir o. s. frv., — lét telja hraunlög- in í Kálfafellstindi og meta þannig meðalþykkt hraunlaga, og mæla hæð og hallajarðsilsstalla sunnan í Pétursey. Birti hann litla grein íjökli 1981 um sumar þessara athugana, „Sitthvað úr Suðurlandsferðum". Pessa afstöðu Kelvins lávarðar, „að mæla það sem mælanlegt er og gera
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.