Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1985, Page 153

Andvari - 01.01.1985, Page 153
ANDVARl „EITT SPOR Á VATNI NÆGBI MÉR“ 151 hinn slétta texta lífi skáldskaparins. Auðvitað lánast þetta misvel hjá Jóni, en samt f'urðu oft: póesían er aldrei fjarri í máli hans. í nýju bókinni stend- ur aftast kafli sem heitir Nútíð og saga. Þar er að fínna biblíuljóðið Hin síð- asta kvöldmáltíð. Jón hefur áður ort út af ritningartextum, m. a. langan ljóðaflokk í Altarisberginu. Hér tekst honum það sem ekki lánaðist í þeim fíokki sem aldrei lyfti sér yfír ritningargreinarnar sjálfar. Kvöldmáltíðin verður persónuleg nærgeng reynsla. Og skemmtilega er ort um Hallgerði í Laugarnesi („Haddur fornkonunnar/ grátt strý í moldinni“).Dauðaógn fornsögunnar er einnig haglega notuð til að skerpa þá lífsjátun sem er kjarninn í viðhorfí skáldsins. Að öllu samanlögðu er Gott er að lifa ein mark- verðasta bókjóns úr Vör á seinni árum. Ferill Kristjáns Karlssonar er sérstæður meðal skálda vorra. Hann er löngu kunnur bókmenntafræðingur og ritgerðahöfundur um bókmennt- ir, en gaf út fyrstu ljóðabók sína, Kvœði, 1976. Kvæði 84 (Almenna bókafé- lagið) sem út kom í fyrra er fjórða bók hans. Kveðskapur Kristjáns er ný- stárlegur í íslenskri ljóðagerð, svo mjög að menn hafa yfírleitt staðið nokk- uð tvíátta gagnvart honum. Líklega þarf að meta ljóð Kristjáns í ljósi kveð- skapar enskumælandi þjóða, en skáld vor hafa sem kunnugt er yfirleitt ver- ið borin upp að ljósi Norðurlanda. Rækilegasta og skilningsbesta greinin um skáldskap Kristjáns til þessa er reyndar samin af erlendum manni sem vald hefur á íslensku, Bernard Scudder: „Utfærsla landhelgi íslenskrar ljóðlistar", Morgunblaðið 7. júlí 1985. Þar er einkum fjallað um ljóðaflokk- inn New York, 1983, stærsta og metnaðarfyllsta verk Kristjáns til þessa. I Kvœðum 84 heldur skáldið áfram sínum undirfurðulega hugmyndaleik. Sannast að segja virðist mér ljóðagerð Kristjáns verða sífellt dulari og einkalegri með hverri bók. í fyrstu bókinni, íslenska hluta hennar, eru nokkur ljóðræn kvæði, í minningu einstakra manna, sem gripu hug lesand- ans tiltölulega fljótt. Þau voru sum hver þó svo abstrakt að sitthvað í þeim að minnsta kosti var afsleppt, ég nefni ljóð um Magnús Ásgeirsson. Nokkur ljóð af þessu tagi eru í næstu bók, Kvœðum 81 sem ég fjallaði dálítið um í Skírni 1982; þeirra á rneðal er hið forkunnargóða kvæði, Vormorgunn á Húsavík. Nú er það fráleit krafa að ljóð skuli vera fljóttekin og auðskilin enda sér hver maður hvernig umhorfs yrði í ríki ljóðlistarinnar ef slíkt mat ætti að gilda. En hins vegar mega þau ekki vera eins og læstur kistill sem höfund- tirinn einn hefur lykil að. Þannig koma ýmis ljóð Kristjáns mér fyrir sjónir, bæði í flokknum New York og nýju bókinni. í fróðlegu og skemmtilegu við- tali í Morgunblaðinu 18. maí 1985 skýrir Kristján ýmis kvæði sín og er gam- an að fylgja hugsanaferli hans. Og þótt lesandinn skilji ekki alltaf vel hvað skáldið er að fara finnur hann þó jafnan návist persónulegs skáldskapar. Alltént er gaman að skoða beitingu ljóðmálsins. Tökum lil dæmis litaskal- ar|n í fyrsta ljóði flokksins Guðríður á vori:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.