Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 46
132
MENNTAMÁL
í höndum barnaverndarnefndar. Ein aí' afleiðingum þess
fyrirkomulags er, að einstök barnaheimili hafa orðið sjálf-
stæðari en heppilegt getur tali/.t. Á einu barnaheimili borg-
arinnar er það orðið samkomulags- og samningsatriði, hvort
heimilið tekur við þeinr börnum, sem nefndin þarf að ráð-
stafa. Nú gefur það auga leið, að stjórnendur einstakra
barnaheimila hafa enga möguleika til að kynna sér, hvar
þörfin er brýnust og ráðstafa plássum í samræmi við það.
Tilraunir barnaverndarnefndar til að iá þessu breytt hafa
reynzt árangurslausar, þó að ijóst sé, að áframhald þessarar
þróunar mundi gera nefndina allt að því óstarfhæfa og leiða
til upplausnar á skipulagi barnverndarstarfs í borginni. —
Barnaverndarnefnd ásamt barnaheimilum er minnsta hugs-
anlega starfseiningin, og þá einingu má ekki rjúfa. Hag-
kvæm verkaskipting og samstarf fleiri stofnana hefur grund-
vallarþýðingu við að efla barnaverndarstarfið. í sambandi
við hið síðarnefnda vil ég geta þess, að á nokkrum stöðum
í Svíþjóð hefur verið komið á skipulegri samvinnu barna-
verndarnefnda, lögreglu og skóla með ágætum árangri, að
því er talið er. Slíkt samstarf mun nú í undirbúningi eða í
þann mund að koma til framkvæmda víðar á Norðurlönd-
um. Hvað fjárhagshliðinni við kemnr er Ijóst, að bætt
skipulag og aukið samstarf leiðir til sparnaðar, en ekki
kostnaðar.
2. Runnsóknarstörf.
Athugun á högurn og ástandi þeirra einstaklinga, sem
barnaverndarnefnd hefur afskipti af, þjónar tvenns konar
tilgangi. í fyrsta lagi eru slíkar rannsóknir sjálfsagður und-
anfari aðgerða eða ráðstafana í hverju eixrstöku tilfelli.
Kröfur um rannsóknir einstaklinganna vegna hljóta að
vaxa, eftir því sem mögnleikarnir veiða nreiri til að veita
hverju einstöku barni meðferð við lræfi. í öðru lagi geta
þessar rairnsókirir, séu þær kerfisbundnar, veitt okkur ýms-
ar þarfar upplýsingar utrr þamr hóp barna, sem er viðfangs-