Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 98
184
MENNTAMÁL
b) Óvenjulega góðir námshæfileikar.
c) Ófullnægjandi námsárangur í einum eða fleiri náms-
greinum.
d) Taugaveiklun og truflanir á geðheilsu.
e) Hegðunarvandkvæði, skróp o. fl.
Markmið deildarinnar með einstaklingsathugunum á
börnum er að vera foreldrum, kennurum og börnunum
sjálfum til leiðbeiningar og aðstoðar á grundvelli fenginna
niðurstaðna. Verður vikið nánar að úrræðum og aðgerðum
hér á eftir.
Eins og sjá má af framansögðu, er aðalhlutverk sálfræði-
þjónustu skólanna að rannsaka orsakir námsörðugleika hjá
einstökum börnum, leiðbeina foreldrum og kennurum um
kennslu þeirra og meðferð. Nám er hins vegar aðeins einn
þáttur í lífi og starfi einstaklingsins, því verður að rann-
saka vandamál hans með hliðsjón af persónulegu lífi hans,
uppeldi, heimilisháttum og félagslegri aðstöðu.
Því verður sálfræðiþjónusta, sem vera á meira en nafnið
tómt, að skyggnast yfir vítt svið, en ekki mæna einhliða
á rembihnút námserfiðleika eða tilviljanakennd frávik í
hegðun barnsins. — Þessa er getið hér til að benda á, að
sálfræðiþjónusta skólanna getur ekki bundið sig einhliða
við vélrænar athuganir á námi og kennslu, þótt Jilutverk
hennar sé öðru fremur að bæta úr á þessu sviði. En sá
árangur næst sjaldan svo gagn sé að, nema litið sé á vanda-
mál einstaklingsins í víðara samhengi.
Af þessu leiðir, að einn frumþáttur starfsins er fyrir-
byggjandi eðlis. Sálfræðiþjónustan leitast því við beint og
óbeint að hafa áhrif til Ineytinga í skólastarfi og uppeldis-
aðstöðu og stuðla þannig að Jjættum skilyrðum barna og
unglinga til alltliða þroska í námi, starfi og persónulegu
lífi.