Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 117
Frá stjórn S.I.B.
Vegna Kjaradóms frá 3. júlí 1963 og þeirra breytinga,
sem orðið liafa samkvæmt honum á vinnutíma og starfs-
kjörum barnakennara, vill stjórn S. í. B. taka fram eftir-
farandi:
1. Kennsluskylda barnakennara skal vera alll að 36
kennslustundir á viku í stað 36 kennslustunda að
jafnaði áður. í breytingunni lelst það, að sé kennara
ætlað að kenna skemur en 36 stundir á viku í sept-
ember eða maí, er ekki heimilt að bæta þeim stund-
um, sem skorta kann á fulla kennsluskyldu, við viku-
lega kennsluskyldu aðra mánuði ársins. Kennurum
er óheimilt að semja um lrávik frá þessu, nema sam-
þykki stjórnar S. í. B. komi til.
2. Daglegur starfstími skóla er frá 9—17 með matarhléi
milli kl. 12 og 13. Hefji skóli starf fyrir kl. 9, skal
hann ljúka störfum þeim mun fyrr. Á laugardögum
skal starfstíma skóla, sem hefst kl. 9, ljúka kl. 12, en
í skóla, sem liefst kl. 8, lýkur starfstíma kl. 11.30.
Á hinum daglega starfstíma skóla skal vera einn
kaffitími, 20 mín., alla daga nema laugardaga. Heim-
ilt er að fella niður kaffitíma og stytta matartíma
með samkomulagi kennara og skólastjóra, enda sé það
samjrykkt af stjórn S. í. B.
3. Yfirvinna:
a) Greiða skal föstum kennurum sem yfirvinnu allar
þær kennslustundir, sem þeir kenna umfram viku-
lega kennsluskyldu, þótt unnar séu í daglegum
starfstíma skólans.
b) Allar kennslustundir, sem l'alla utan hins daglega
starfstíma skóla, þar með taldir matartímar, enda