Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 50
ÞORSTEINN EINARSSON:
Ný skólahúsgögn.
Árið 1959 skrifaði ég fyrir fræðslumálaskrifstofuna grein
í 2. liefti Menntamála um skólahúsgögn.
Lauk ég greininni með því að birta myndir af sam-
byggðum húsgögnum, sem þá var verið að taka í notkun
í skólum í Evrópu, en höfðu fyrir nokkrum árum verið
framleidd fyrir skóla í Bandaríkjunum.
Þeir dr. Broddi Jóhannesson, núverandi skólastjóri Kenn-
araskóla íslands, og Oddur Sigurjónsson, skólastjóri, færðu
mér myndir og bæklinga um skólahúsgögn, sem þeir höfðu
séð í Bandaríkjunum, er þeir ferðuðust þar um árið 1958.
Meðal þessara gagna voru upplýsingar um sambyggð skóla-
húsgögn.
Er Oddur Sigurjónsson tók við gagnfræðaskóla Kópa-
vogs og þurfti að fá húsgögn í nýja gagnfræðaskólabygg-
ingu, óskaði liann eftir sambyggðum húsgögnum. Þáver-
andi bæjarstjóri, Hulda Jakobsdóttir, studdi hann í þessu
og féllust skólayfirlæknir Benedikt Tómasson og fræðslu-
málastjóri Helgi Elíasson á, að þessi gerð húsgagna skyldi
reynd.
Steinar Jóhannsson, húsgagnasmiður, tók að sér smíðina
og voru smíðuð sæti í 5 stofur. Helgi Hallgrímsson, hús-
gagnaarkitekt, teiknaði húsgögnin.
Húsgögn þessi reyndust nemendum þægileg og kennur-
um líkaði vel við Jrau. Húsvörður og ræstingafólk lauk á þau
lofsorði.
Er skólinn þarfnaðist fleiri sæta, var enn aflað sambyggðra
húsgagna.
Á s. 1. vetri voru smíðuð hjá sama fyrirtæki sambyggð hús-
gögn í 2 kennslustofur hins nýja kennaraskólahúss sam-