Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 142
228
MENNTAMAL
Við 2. lið e.-grein liafði borizt svohljóðandi breytingartillaga frá
Jóhanni Frímann:
Á cftir orðunum sérstök námshrd komi: fyrir seinfærasta lióp gagn-
l'ræðastigsins.
Breytingartillagan var samþykkt með 11 atkvæðum og án mótat-
kvæða. Verður þá e. liður, eftir samþykkt breytingartillögunnar,
þannig:
e) að samin verði sérstök námskrá fyrir seinfærasta lióp gagnfræða-
stigsins.
Síðan var 2. liður tillögunnar samþykktur samhljóða.
Prófnefnd.
]ón Gissnrarson, framsögumaður prófnefndar, lagði fram
svohljóðandi tillögu.
1. Gagnfræðapróf verði samræmt í þessum greinum:
íslenzku, dönsku, ensku og stærðfræði.
2. Lágmarkseinkunnar verði krafizt í íslenzku og stærð-
fræði, sem sé 4,00.
3. Árseinkunnir séu gefnar fyrir upplestrarleyfi og gildi
að i/3 af heildareinkunn.
Eftir ræðu framsögumanns liófust umræður, þessir tóku til máls:
Þorsteinn Víglundsson, Jóhann Frímann, Sveinbjörn Sigurjónsson,
Helgi Elíasson, Valgarð Runólfsson, Óskar Magnússon, Jón Gissurar-
son, Þórir Steinþórsson og Benedikt Sigvaldason.
Undir umræðunum komu fram eftirfarandi breytingartillögur:
Frá Jóhanni Frímann:
Sú breyting verði gerð á 1. gr., að á eftir orðunum samraimt komi
„í bóknámsdeildum“.
Frá Valgarði Runólfssyni:
1. gr. orðist svo: „Almennt miðskólapróf og gagnfræðapróf verði
samræmt í þessum greinum“.
Frá Óskari Magnússyni:
3. gr. orðist svo: „Árseinkunnir séu gelnar íyrir upplestrarleyfi og
gildi í/ó af heildareinkunn".
í umræðunum kom fram ósk um, að verði lágmarkseinkunn upp
tekin, sé hún miðuð við meðaltals lágmark í íslenzku ntunnl. og skrif-
legri, dönsku, ensku og reikningi.