Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 139
MENNTAMAL
225
5) Vetrareinkunn sé byggð á mati kennarans.
6) Persónulegt mat kennarans verði meira.
7) Auka þart' hlutlægni prófanna.
8) Auka þarf munnleg próf.
Þegar framsögumaður hafði lokið máli sínu hófust umræður. Þess-
ir tóku til máls:
Helgi Elíasson, Jón Gissurarson, Broddi Jóhannesson, Helgi Þor-
láksson, Runólfur Þórarinsson, Ólafur Haukur Árnason, Svein-
björn Sigurjónsson, Oddur Sigurjónsson, Bjarni Vilhjálmsson,
Magnús Gíslason, Jóliann Jóhannsson, Þórir Steinþórsson, Þorsteinn
Matthíasson.
Gert var hlé á umræðum, nteðan fundarmenn drukku síðdegis-
kaffi í skólanum í boði fraeðslumálastjóra.
Að loknum umræðum lagði fundarstjóri fram eftirfarandi tillögu
um menn í námsefnisnefnd og prófnefnd.
1) Námsefnisnefnd: Sveinbjörn Sigurjónsson, Ólafur H. Kristjáns-
son, Magnús Jónsson, Ólafur Haukur Árnason, Benedikt Sigvalda-
son, Kristján Gunnarsson, Rögnvaldur Sænnindsson.
2) Prófnefnd: Jón Á. Gissurarson, Jón R. Hjálmarsson, Helgi Þor-
láksson, Oddur Sigurjónsson, Ólafur Þ. Kristjánsson, Þórarinn Þór-
arinsson, Jóhann Frímann.
Aðrar uppástungur bárust ekki. Nefndirnar voru kjörnar samhljóða.
l’undarstjóri tilkynnti, að nefndirnar yrðu að ljúka störfum fyrir
hádegi næsta dag, ennfremur minnti liann fundarmenn á hádegis-
verðaboð menntamálaráðherra og ætla/t væri til, að allir væru
mættir kl. 12,30 e. li.
Fundi slitið kl. 7,15.
Föstudaginn 14. júní.
Eftir að fundarmenn liöfðu setið í góðum fagnaði í boði mennta-
málaráðherra, var fundur scttur kl. 2,45 e. h.
Nefndarálit.
Kristján Gunnarsson, skólastjóri, hafði framsögn fyrir
námsefnisnefnd. Tillögur nefndarinnar höfðu verið fjöl-
ritaðar og þeim útbýtt meðal fundarmanna. Framsögumað-
ur skýrði viðhorf nefndarinnar og vilja um, að stórt spor
yrði stigið í þessum málum. Tillögurnar eru svohljóðandi:
Fundur skólastjóra héraðs- mið- og gagnfræðaskóla, hald-
15