Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 116
202
MENNTAMÁL
hugleiðingar og nokkra þekkingu á liðinni tíð. Með þessu
er starf kennarans létt, sem þá um leið verður vænlegra til
góðs árangurs. Ef hér er af alúð unnið, má fullyrða, að
með því starfi er lagður traustur grunnur að öllu námi
barnsins og því gerður meiri greiði, meira gagn, en vera
mundi þótt það sé sett á skólabekk löngu áður en skyldan
býður.
I eftirmála segir, að myndir þær, sem bókinni fylgja á
lausum blöðum, séu til hagrœðis foreldrum og kennurum.
Þetta segir vissulega ekki nóg. Hver einasta mynd opnar
útsýn yfir heila fræðigrein og hinar endalausu víðáttur
hennar. Geta þær einar sér verið ómetanlegt hjálpartæki
í höndum þeirra, sem með kunna að fara. F.r auðséð á öllu,
að höfundur þeirra, sem er Þórir Sigurðsson kennari, hefur
unnið verk sitt af alúð og frjórri hugkvæmni. Sjálfsagt var
að gefa þessar myndir út á sérstökum spjöldum, eins og
gert var, en hitt hef'ði einnig verið æskilegt að fá þær í
bókinni sjálfri á viðeigandi stöðum. Sú yfirsjón útgáfunnar
verður vonandi bætt í næstu prentun, og hennar verður
efalaust ekki langt að bíða. Ekki er því að leyna, að þessi
litla bók virðist ákaflega fyrirferðarlítill dropi í hinu mikla
bókaflóði undanfarna mánuði, liefur enda látið lítið yfir
sér. F.n gagnsemi bóka fer ekki ævinlega eftir auglýsingum
ogskrumi. Oggrunur minn er sá, að Leiðsögn í átthagafræði
sé meðal allra þörfustu bóka, sem út komu á árinu 1963.
Jón Þórðarson.