Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 134
220
MENNTAMÁL
í Grafningi. Sumarbústaðurinn er 130 ferm. að stærð, 5 herbergi, eld-
hús, tvö baðherbergi og stór setustofa. Húsinu lylgir bátaskýli ásamt
tveim bátum og veiðileyfi í Þingvallavatni. Stjórn S. í. hefur nú geng-
ið frá kaupum þessunt, og geta félagsmenn sótt um að fá að dvelja
þarna um tíma, ásamt fjölskyldum sínum, á sumri komanda, frá júní-
byrjun til septemberloka. Þeir, sem kaupa hluldeildarbréj í eignum
þessum, ganga fyrir dvöl í Bakkaseli.
í sambandi við launamálin var rætt um stundakaup skólastjóra, en
það hefur nú verið ákveðið, um greiðslu til þeirra skólastjóra, sem
hafa unglingadeildir í barnaskólum sínum (vísað til kjararáðs), um
skiptingu skólastjóra í launaflokka (hefur verið vísað til kjararáðs),
kennsluskyldu o. fl.
Stjórn S. í. undirbýr og skipuleggur kynnisferð til Noregs fyrir fé-
lagsmenn sína á sumri komanda.
Allmiklar umræður urðu um niðurskurð á lögboðinni kennslu í
barna- og unglingaskólum, og þótti jtað tíðindum sæta, að felld hef-
ur verið niður kennsla 7 og 8 ára barna sums staðar á landinu. Hörm-
uðu fundarmenn, að íslenzka þjóðin skyldi allt i einu vera orðin
svo fátæk, að hún gæti ekki lengur ltaldið uppi lögboðinni kennslu
í skólum landsins. Eftirfarandi tillaga var samþykkt:
„Fundur í Skólastjórafélagi íslands, haldinn í Reykjavík 29. des.
1963 mótmeelir niðurskurði á lögboðinni kennslu í barna og unglinga-
skólum landsins, þar sem slikt á sér stað og treystir þvi, að freeðslu-
málastjórnin haldi vöku sinni og gœli þess, að lög um freeðsluskyldu
frá 1946 séu haldin".
Aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða.
Aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða var haldinn í Barnaskóla ísa-
fjarðar 20.—22. september s. 1.
Fundinn sóttu 19 kennarar af Vestljörðum og ennfremúr Þórleifur
Bjarnason námsstjóri, sem flutti erindi um kennslu í lesgreinum.
Páll Aðalsteinsson, skédastjóri í Reykjanesi, flutti erindi um
handavinnukennslu. Auk þess flutti Helgi Sæmundsson, ritstjóri, for-
maður menntamálaráðs, fyrirlestur, er hann nefndi: „Islenzk menn-
ing í samtíðarspegli''. Var liann fluttur í samkomusal Gagnfræðaskól-
ans og öllum heimill aðgangur.
Á fundinum fóru fram umræður um öll þessi erindi.