Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 138
224
MENNTAMÁL
skoðuð með tilliti til þess að geía þyrfti nemendum kost á fjöl-
breyttara nárni, einnig þyrfti að lengja árlegan starfstíma skólanna,
svo að betri not yrðu að náminu. Mikilsvert væri að finna sem hent-
ugastar feiðir um nám og námstilhögun, þar sem aðsókn að skólun-
um væri mjög mikil eftir lok skyfdunámsins. Hér í Reykjavlk sæktu
80—90% unglinga skóla eftir unglingapróf.
Er ræðuntaður hafði lokið máli sínu, átti samkv. dagskrá fundar-
ins, annar frantsögumaður um gagnfræðanám, Rögnvaldur Sæmunds-
son, skólastjóri, að taka til máls. Hann var staddur úti á landi og
flug hafði brugðizt, svo að hann var ekki mættur. Varð því að ráði,
að Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri, flytti íramsöguerindi sitt um
próf í gagnfræðastigsskólum. Bað hann Sveinbjörn Sigurjónsson að
gegna fundarstjórastörfum.
Þórarinn Þórarinsson taldi í ræðu sinni gagnfræðaprófin hafa
verið nokkuð frjáls undanfarið og lilils samræmis' hafa gætt milli
skólanna um prófin, frelsið í því efni hefði að vísu sína kosti og
einnig ókosti. Nú þyrfti að samræma prófin. f Reykjavík væri um
þrenns konar gagnfræðapróf að ræða, almennt próf, verzlunarpróf
og verknámspróf. Gagnfræðapróf þtirf að vera tvíþætt, annars vegar
hæfnispróf gildandi fyrir nemandann, ef hann sækir um starf eða
sérskóla — hins vegar uppeldislegt próf, sem gæfi til kynna þátt skól-
ans til þess að gera nemandann að liæfum borgara. Æskilegt er, aö
prófið geti gefið traustar upplýsingar urn nemandann.
Þá lagði hann ríka áherzlu á að kynna sérstöðu héraðsskólanna og
þann mun, sem hlýtur að vera á námi þar og í skólum bæjanna.
Viðliorfið þarf að vera það, að nemandinn geti lcyst prófið af liendi,
þrátt íyrir mislangan námstíma í skólum. Óskaði eindregið eftir
að fullt tillit yrði tekið til sérstiiðu liéraðsskólanna.
Fundarhlé kl. 12.
Klukkan 2 e. h. var fundur settur að nýju af Ólafi Þ. Kristjánssyni,
sem nú tók við fundarstjórn.
Jónas Pálsson, sálfræðingur ffutti framsöguerindi urn próf í skól-
um. Ræddi hann um gerð prófa og notkun, kosti þeirra og ókosti.
Hann benti á ýmsar leiðir til þess að draga úr ofnotkun prófa, sem
töluverð brögð væru að, m. a. gætu skólastjórar gert nákvæma starfs-
áætlun og framfylgt ltenni, slík áætlun samfara eftirliti myndi draga
úr prófum. Helztu niðurstöður ræðumanns voru þessar:
]) Próf eru ofnotuð.
2) Of mikill tími fer í próf á báðum skólastigum.
3) Einkunnastigi er of nákvæmur.
4) 'l’ornæm börn íái sérstakt próf.