Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 136
222
MENNTAMAL
andi í Skálholti, að þar verði stofnaður kirkjulegur lýðháskóli, scm
hafi það hlutverk að gefa islenzkum æskulýð kost á fræðslu á trúar-
fegum, siðferðilegum og þjóðernislegum grundvelli, svo og nauðsyn-
lega þjálfun í leikmannastarfi tii eflingar kirkju Krists á íslandi.
4. Hinn 14. almenni kirkjulundur vottar innilegar þakkir þeim
erlendum vinum íslands og kirkju Krists á Islandi, sem liafa sæmt
Skálholtsstað góðum gjöfum, og biður þeirn blessunar Guðs. Einnig
þakkar hann þau tækifæri, sent íslenzkum ungmennum hafa verið
gefin með því að þeini hefur verið gefinn kostur á námi í lýðhá-
skólum frændþjóðanna.
5. Hinn 14. almenni kirkjufundur heitir á alla þá íslendinga, sem
meta gildi kristins trúarlífs fyrir menningu þjóðarinnar, að efla Skál-
holtsstað með fyrirbænum og gjöfum, svo að kristin kirkja megi eignast
þar andlega orkulind og þjóðin menningarlega gróðrarstöð.
2. Um aðflutningsgjöld af orgelum til kirkna var svohljóðandi álykt-
un samþykkt:
Almennur kirkjufundur 1963 skorar á fjármálaráðherra að beita
sér fyrir því, að aftur verði lögfest í tollskrárlögum lieimild til handa
fjármálaráðuneytinu að fella niður aðflutningsgjöld af orgelunt til
kirkna.
3. Um útvarpsmessur var samþykkt eftirfarandi ályktun:
Hinn almenni kirkjufundur, haldinn í Reykjavík dagana 25.-26.
október 1963, ályktar að æskilegt sé að útvarpa öðru hvoru guðs-
þjónustu utan af landi frá ýmsum landshlutum, svo að útvarpshlust-
endur fái víðtækari kynni af kristnihaldi þjóðarinnar en verið hefur.
J. Um þjóðfálagslega þjónustu (diakóniu) kirkjunnar var þessi álits-
gerð samþykkl:
Kirkjufundurinn felur komandi stjórn næsta fundar að kveðja til
fimm manna nefnd til að flytja á næsta kirkjufundi ákveðnar til-
lögur um, hvernig bezt sé að skipuleggja líknarstörf safnaðanna
innan kirkju vorrar, einkum þó með tilliti til gamla fólksins og
sjúklinganna.
Ennfremur var samþykkt að vísa til biskups og kirkjuráðs tillögu
frú Jósefínu Helgadóttur um Ijóra ferðapresta til starfa, einn í
hverjum landsfjórðungi, þar eð það cr ntikið mál og þarfnast mikils
undirbúnings.
Til sörnu aðila var einnig vísað tillögu Jóns H. Þorbergssonar um
könnun á kristnihaldi þjóðarinnar, sem er víðtækt sóciólogiskt við-
fangsefni.
Jóhann Hannesson
ritari undirbúningsnefndar.