Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 54
ÞÓRGNÝR GUÐMUNDSSON:
Sínum augum lítur hver á silfrið.
í „Menntamálum", XXXV. árg. 3. h., ritar Friðbjörn
Benónísson grein, er hann nefnir „Frá innnesjum til Aðal-
dals“. Er það andsvar við ritgerð, sem ég fékk birta í „Morg-
unblaðinu" 23. sept. f. á. með yfirskriftinni „Þeir eiga
þakkir“. Ég kem síðar að efni nefndrar Morgunblaðsgrein-
ar og andsvari F. B., en tel rétt að víkja lítillega að öðru
áður, vegna þess hvernig grein hans er ofin öðrum þræði.
Upphafsorð hennar eru þessi: „Enn hefur Þórgnýr Guð-
mundsson sagt kennurum til syndanna". Það er rétt, að ég
lief áður í ritgerðum rætt vandamál kennarastéttarinnar og
annarra uppalenda. F. B. nefnir ritgerð, er ég á í „Mennta-
málum“ en hana er að finna í XXXIII. árg. 3. hefti 1960,
bls. 206-217.
Eðlilegt er, að þeir, sem lesa orð F. B., ]iau er tilfærð
voru, álykti, að ég hafi með endurteknum hætti reitt til
höggs gegn kennarastéttinni. Sætir furðu, að hann skuli
ekki rökstyðja þetta, en enga tilraun gerir hann til þess.
Hann túlkar einhliða afstöðu mína til kennarastéttarinnar,
en lætur að mestu ógert að ræða það efni, sem Morgun-
blaðsgrein mín fjallar um. Mun ég reyna að rökstyðja þetta.
Öllum, sem við kennslu fást og uppeldi æskunnar yfir-
leitt, er mikill og vaxandi vandi á höndum. Þess vegna er
eðlilegt, að kennarar láti í ljós skoðanir um uppeldismálin,
svo mjög sem þau eru þeim náin. Mest af því, sem skrifað
er um þessi mál, túlkar skoðanir forystumanna í kennara-
stéttinni, en þeir eru flestir búsettir á sama landshorninu.
Ég tel eðlilegt og nauðsynlegt, að einnig heyrist raddir um
þetta utan af landsbyggðinni.