Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 67
MENNTAMÁL
153
lands bænda og dæmt í málum þeirra í krafti réttar, sem
þeir höfðu sjálfir skapað. Hann ltafði haft lögregluvald á
hendi í þorpum. Er hér var komið sögu, höfðu bændur öðl-
azt frelsi og smám saman komið á sveitarfélögum, sem réðu
sjálf málum sínum.
Samt var það svo, að allt fram að fyrri lieimsstyrjöldinni
gegndi aðallinn mikilvægu hlutverki í ríkinu. Það á ekki
aðeins við um Prússland, en rétt er að benda sérstaklega á
fyrirkomulagið þar, því að Prússland hafði forustuna í þýzka
ríkinu. Á neðsta þrepi skipulagsins var að vísu um að ræða
sjálfstjórn þorpa, en jarðeignaumdæmi aðalsmanna lutu
lienni ekki. Þar var jarðeigandinn eftir sem áður staðaryfir-
vald og fór með lögreglustjórn. Tala slíkra sjálfstæðra jarð-
eignaumdæma var ekki lág, hún losaði 15 þúsund. Alhnörg
hreppsfélög og jarðeignaumdæmi voru sameinuð í ömt, og
Voru stjórnendur þeirra jafnan jarðeigendur af aðalsættum.
Omtin mynduðu svo sýslur. Á sýsluþingum var helmingur
allra sæta í höndum stórjarðeigenda. Æðsti embættismaður
sýslunnar var sýslumaðurinn. í austurhéruðum ríkisins voru
sýslumenn nær einvörðungu aðalsmenn, sem byrjuðu hér
starfsskeið sitt sem opinberir embættismenn í stjórnarstörf-
um. Einkum voru aðalsmenn fjölmennir í hinum æðri emb-
ættum stjórnarinnar, og Jrað sama átti við um erindreka
ríkisins í öðrum löndum og um herinn. Nokkrar tölur sýna,
hvernig þessu var háttað rétt fyrir heimsstyrjöldina fyrri.
Hlutur aðalsins í Prússlandi rétt fyrir heimss.tyrjöldina
fyrri:
Héraðsstjórar (Oberprásidenten) ................ 73,3%
Stjórnarforsetar (Regierungsprásidenten) ....... 51.4%
Sýslumenn (Landráte) .............................. 56,2%
Ambassadorar og sendiherrar..................... 42 %
Hershöfðingjar og ofurstar ..................... 52 %
Herforingjaráð ................................. 50 %
Liðsforingjar í Prússlandi ..................... 30 %