Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 43
MENNTAMÁL
129
af þúsundi. í Reykjavík voru börnin 22053, hegningarlaga-
brot frömdu 71 eða um 3,2 a£ þúsundi. Ályktanir verða að
sjálfsögðu ekki dregnar af jafntakmörkuðum samanburði,
en hann gefur þó vísbendingu um, að ástandið hjá okkur
kunni að vera verra en við viljum gjarna telja okkur trú
um.
Hverjir eru svo möguleikar barnaverndarnefndar Reykja-
víkur til að ráða fram úr þeim vandamálum, sem drepið
var á? Þar er skemmst frá að segja, að starlsaðstaða nefndar-
innar hefur alla tíð verið erfið. Hana hefur skort margt
það, sem ekki verður án verið. Nefndin hefur hvorki haft
nægilegu starfsliði á að skipa til að sinna verkefnunum
eins og þurft hefði né hefur hún ráðið yfir úrræðum í þeirn
nræli, sem nauðsynlegt hefði verið. Starfsfólk nefndarinn-
ar er nú fernt, en til samanburðar má geta þess, að starfslið
barnaverndarnefndar Kaupmannahafnar var á s. 1. vori um
270 manns, eða milli 6 og 7 sinnum fleira miðað við íbúa-
tölu þessara borga. Hvað úrræðin snertir gegnir svipuðu
máli. Á barnaheimilum borgarinnar rúmast um 80 börn.
Síðan 1950 hefur barnaheimilisplássum borgarinnar fjölg-
að um 10 eða um 0,8 til jafnaðar á ári. Að auki hefur svo
nefndin aðgang að vistheimilinu í Breiðuvík og upptöku
heimili ríkisins að Elliðahvammi. Þessi heimili fullnægja
hvergi nærri þörfum. Undir eftirliti barnaverndarnefndar
eru að staðaldri fleiri eða færri heimili, þar sem aðbúnað-
ur barna er óviðunandi, þrátt fyrir umvandanir og leið-
beiningar. Þessi heimili verða ekki leyst upp, því að hvorki
er hægt að koma börnunum fyrir á barnaheimilum sökum
þrengsla þar né verða þau vistuð með öðrum hætti við nú-
verandi aðstæður. Verst er þó ástandið hvað viðkemur eldri
börnum og unglingum með áberandi hegðunarerfiðleika.
í Reykjahlíð, eina heimili borgarinnar fyrir eldri börn, er
ekki aðstaða til að vista börn af þessu tagi, enda full þörf
á þeim 20 plássum, sem þar eru, fyrir önnur börn. Eini
staðurinn þar sem afbrotadrengjum verður komið fyrir til
9