Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 110
196
MENNTAMÁL
Skipting milli kynja:
Drengir.................................... 246 cða 73,9%
Stúlkur ................................... 87 eða 26,1%
SKÝRINGAR VIÐ ÁRSSKÝRSLUR.
Flokkun sú á börnum, er rannsökuð hafa verið í Sálfræði-
deild skóla s.l. 3 ár, er frumsmíð. Markt orkar þar tvímæl-
is í skipan og uppsetningu. Fylgja með fáeinar skýringar,
ef verða mætti til glöggvunar.
Starfsárið: Deildin miðar starfsár sitt við 1. ágúst ár hvert.
Þótti það bezt í samræmi við skólaárið, sem hefst 1. sept.
Flokkun athugunarbeiðna: Flokkun Jressi er byggð á um-
sögn foreldris um aðaltilefni Jress að beðið er um athugun,
en auk Jtess er stundum stuðzt við nánari frásögn sama að-
ila í fyrsta viðtali. Greina mætti enn nákvæmar eftir orðum,
sem notuð voru af foreldrum sjálfum, en ekki Jrótti ástæða
til Jress að sinni.
Niðurstöður rannsókna: Þess ber l'yrst að geta, að deild-
in lítur ekki á börn, er til hennar er leitað með, sem sjúkl-
inga í venjulegri merkingu Jress orðs. í stað J>ess að nota
sjúkdómsgreiningu sem þýðingu á hugtakinu „diagnosis“
höfum við fremur kosið að tala einfaldlega um niðurstöður
rannsókna eða greiningu vandkvæða. Hitt er rétt, að niður-
staða rannsóknar kann að vera á J>á leið, að réttlætanlegt
sé að tala um sjúkdóm, t. d. taugaveiklun, sem tekið hefur
á sig fastmótað gervi með ákveðnum einkennum. Einnig
má segja að fávitaháttur og jafnvel vanvitaháttur heyri und-
ir sjúkdóma.
Sálfræðiþjónusta skólanna, eins og hún er skilgreind hér,
tekur einkum mið af starfrænu hæfi einstaklingsins með sér-
stöku tilliti til námsgetu og aðlögunar. I fáum orðum má
segja, að greiningin byggist |>ví á nákvæmni rannsóknar og
hinsvegar J>ví hagnýta hlutverki, sem deildin á að gegna
og nokkuð hefur verið lýst að framan.