Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 81
MENNTAMÁL
167
nrnar, sem það hefur skapað. Og raunar gerist þetta ein-
mitt þar, sem hin skipulögðu þjóðfélagsöfl, verkalýðsfélög
og vinnuveitendur, geta háð innbyrðis baráttu um skipt-
ingu arðsins á grundvelli frjálslegrar stjórnskipunar, en
ekki þar sem ný stétt valdhafa myndast með þvingunar-
einræði eins flokks. Það liefur þess vegna haft meginþýð-
ingu fyrir hinn innri samruna hins þýzka þjóðfélags og
innra samband þess við hið nýja, frjálsa ríkisskipulag, að
þýzkir sósíaldemókratar undir forystu Kurt Schumachers
höfnuðu strax eftir stríðið, á ótvíræðan hátt, hinum
kommúnistisku aðferðum, eins og þeim er beitt í Austur-
Þýzkalandi. Þeir liafa ásamt kristilegum og frjálsum demó-
krötum skapað stjórnarskrána, sem kennd er við Bonn,
hina nýju stjórnskipan okkar. Þessi stjórnskipan, sem livíl-
ir á grunni þjóðfélags með dvínandi stéttaríg, sýnir heil-
brigðari þróun en stjórnmálalífinu á dögum Weimarlýð-
veldisins auðnaðist að ná. Hinir pólitísku hópar, sem átt-
ust við í Weimarlýðveldinu, lögðu til atlögu hver gegn ()ðr-
um undir ýmsum ríkistáknum, undir ýmsum fánum, svart-
rauð-gullna fánanum, svart-hvít-rauða fánanum, rauða fán-
anurn með hamar og sigð og hakakrossfánanum. Ferns
konar ríkiskerfi börðust hatramlega innbyrðis. Því var ekki
um að ræða myndun neins meirihluta, og ríkið leið þar af
leiðandi undir lok. Gagnstætt þessu hafa kjósendur í Sam-
bandslýðveldinu hallazt æ meir að tvíflokkakerfinu, tveim
flokkum, sem þrátt fyrir allan mismun játast þó undir sams
konar ríkiskerfi. Við samningu stjórnarskrárinnar var af
ráðnum hug stuðzt við reynslu þýzkrar siigu. Ég vil hér eink-
um nefna tvö atriði, og er annað staða forseta Sambandslýð-
veldisins í samanburði við stöðu forsetans í Weimarlýð-
veldinu. Þjóðþingið frá 1919 hafði veitt ríkisforsetanum
allverulegt vald. Á fyrstu árunum eftir lyrri heimsstyrjöld
höfðu höfundar stjórnskipunarinnar enn að miklu leyti
stjórnskipan einveldisins að leiðarljósi. í persónu ríkisfor-
setans sáu þeir hinn lýðveldislega arftaka keisarans. En