Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 118
204
MENNTAMÁL
þótt um skyldukennslu sé að ræða, skal greiða
með fullu yfirvinnukaupi.
c) Falli hluti kennslustundar utan hins daglega starfs-
tíma skóla, þar með taldir matartímar, skal reikna
þann tíma sem hér segir:
1) fyrir allt að 20 mínútum reiknast hálf kennslust.
2) fyrir 20—40 mínútur reiknast ein kennslustund.
d) Til eftirvinnu teljast 2 fyrstu stundirnar eftir að
daglegum starfstíma skóla lýkur, en þá hefst næt-
urvinna. Helgidagavinna telst sú vinna, sem nnn-
in er eftir kl. 13 á laugardögum.
4. Verði eyða í daglegum, samfelldum starfstíma kenn-
ara, skal greiða lyrir hverja kennslustund í slíkri
eyðu laun, sem nema þ) hluta dagvinnukaups. Kenn-
urum er óheimilt að semja um frávik frá þessu, nema
samþykki stjórnar S. í. B. komi til.
Þau ákvæði í úrskurði menntamálaráðuneytisins um
greiðslur vegna erindisbréfs kennara, sem giltu sl. skólaár
og brjóta í bág við framanritað, eru að sjálfsögðu úr gildi
fallin. (Sbr. 5. gr. 3. málsgr. í lögum um kjarasamninga
starfsmanna ríkisins.)
Barátta kennarasamtakanna undanfarin ár hefur fært
stéttinni nokkrar kjaraljætur, bætt vinnuskilyrði og aukin
réttindi. Þessi árangur hefur náðst fyrir samstöðu og ein-
ingu stéttarinnar. Það er nú brýn nauðsyn, að kennarar
standi fast á rétti sínum og semji ekki af sér þau hulnnindi,
sem áunnizt liafa. Því ber að gjalda varhug við hvers konar
frávikum, sem óhjákvæmilega veikja aðstöðu samtakanna
í áframhaldandi baráttu fyrir hagsmunamálum kennara.
Stjórn S. í. B. væntir þess eindregið, að kennarar sýni sama
stéttarþroska og jafnan áður og hlíti fyrirmælum stjórnar
S. í. B. um þessi mál.