Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 16
102
MENNTAMÁL
og undirföi'ult, þegar það finnur til þverrandi ástúðar.
Einnig í skólanum er sjálfsálit barnsins að verulegu leyti
iiáð viðbrögðum kennaranna og svo því, hvernig því finnst
]rað vera í samanburði við aðra nemendur. Sumt af van-
gengi og andstæðri afstöðu hlýzt af því að beita einhliða
mælikvarða, sem öllum börnum er ætlað að laga sig eftir,
og þeirri skoðun, að vangengi sé undantekningarlaust barn-
inu sjálfu að kenna. Höfuðvandamál fræðsln er að tryggja,
að livert barn fái nægilega erfið viðfangsefni til að leggja
sem mest að sér í von um að ná árangri og að vera viss um,
ef því mistekst, að það líti á það á hlutlausan hátt sem
hvatningu til að reyna betur, fremur en því finnist það til
einskis nýtt í augum hins fullorðna. Einnig verður að muna,
að duglega barnið, sem alltaf fær verkefni léttara en hæfir
getu þess, gerir sér ef til vil! aldrei grein fyrir, hvers það
er megnugt, af því að það kemst of auðveldlega áfram.
Vangengi þess er engu að síður staðreynd, þó að það sé
ekki eins augljóst, og skaðinn kann að vera meiri. Til eru
leiðir til að yfirstíga hin ýmsu vandamál, sem verða við
vangengi og samltand þess við mismunandi skólakerfi. Hér
er þó rétt að láta í ljós þá skoðun, að raunverulegt vangengi
er, þegar í ljós kemur misræmi á hæfni og frammistöðu
barns eða unglings hvort lieldur er í námi eða þroska.
Þess liáttar skilgreining tekur til allra mismunandi þátta á
hæfileikasviðinu og felur í sér þá staðreynd, að snm börn
verða langt yfir meðallagi, en önnur langt undir, hversu
mjög sem kennarar og foreldrar leggja að sér. Með því
að taka barnið eins og það er og þar sem það er, er mögu-
legt að fá það til að neyta hæfileika sinna sem allra bezt
og sætta sig við, að það sé frábrugðið, en aðeins frábrugðið,
svo að hvorki komi til ofmetnaðar né vanmetakenndar.
Við getum játað, að við þekkjum ekki vissar eða jafnvel
beztu leiðirnar við að rannsaka hæfni, og uppeldisáhrif
lieimilis, skóla og umhverfis hindra eða auðvelda á marga
ógreinanlega háttu færni barns til náms og aðlögunar. Engu