Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 145
MENNTAMÁL
231
2) Aff vera málsvari kennaranema gagnvart öffrum félagssamtökum
og yfirvöldum landsins.
3) Aff leita eftir samstarfi við kennara- og æskulýðssamtök á Islandi
og erlendis.
•1) Aff efla samvinnu milli Norffurlanda og norrænna kennaranema
með því að halda námskeiff og fundi, ásamt þátttöku í Det
Nordiske Seminaristrád (D.N.S.).
Stjórn S.Í.K. vinnur nú aff starfsáætlun fyrir næsta ár. Meðal atriffa,
sem boriff liefur á góma, má nefna affild samtakanna aff D.N.S., sem
væntanlega verffur gengiff frá aff sumri, námslán og námsstyrkir til
handa kennaranemum, almennar upplýsingar um kennaranám o. m. fl.
Stjórn samtakanna skipa:
Formaffur: Ólafur Proppé.
Varaformaffur: Steinar |. Lúffvíksson.
Gjaldkeri: Karl Jeppesen
Ritari: Svanhildur Káber.
Spjaldskrárritari: Sigríffur Einarsdóttir.
S.Í.K. væntir þess, aff í framtíffinni verffi gott samstarf milli þeirra
og íslenzkra kennara.
SKÓLAHÓKASÖFN OG HLUTVERK ÞEIRRA í NÁMINU.
— Norrrcnt námskeið —
Danmarks Læreliöjskole, danski kennaraháskólinn, gengst fyrir
námskeiffi fyrir barna- og gagnfræðaskólakennara á Norffurlöndum
dagana 28. júní—4. júlí n.k. Námskeiffiff verffur haldiff á Jonstrup
Statsseminarium, Trongárdsvej, Kgs. I.yngby, sent er 10 km fyrir
norffan Kaupmannahöfn.
Meffal þeirra efna, sem um verffur fjallaff í fyrirlestrum og umræff-
um einstakra hópa, skulu þessi nefnd:
Starf námshópa, miiguleikar þess og takmarkanir.
Lestrarhæfni barna.
Lesefni barna.
Samvinna skólabókasafns og kennsluvéla.
Kennslubækur meff hliffsjón af sjálfstæffu starfi nemenda.
Þátttakendum verffur skipt í hópa, og fær liver hópur ákveffin efni
til umræðu og athugunar.
Stjórnandi námskeiffsins vcrffur mag. art. Gunnar Jakobsen.
Þátttakendur munu búa í eins manns herbergjum 1 heimavist skól-
ans. Dvalarkostnaffur verffur 24 danskar krónur á sólarhring.
I umsókn um þátttöku skal greint nafn umsækjanda, heimilisfang
og menntun, og þarf umsóknin aff hafa borizt Danmarks Lærehiij-
skole Emdrupvej 101, Köbenhavn NV fyrir 15. apríl n.k.