Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 5

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 5
IÐUNN Helgafell. „Þá skulu vit ganga upp á Helgafell; þau ráð hafa sízt at engu orðit, er þar hafa ráðin verit“. Snorri goði. I. Enginn maður, sem kemur iil Slykkishólms að sumarlagi og á völ á því, að dveljast þar nokkurar klukkustundir, þarf að vera í neinum vafa um, hvernig hann eigi að verja þeim tíma. Hann fer auðvitað suður að Helgafelli í Helga- fellssveit. Þangað er rúmlega klukkustundar hægur gangur eftir greiðum vegi. Meginkrók- urinn á þeirri leið er fyrir Nesvog, sem skerst inn í landið til suðvesturs. En þegar komið er fyrir vogsbotninn, stígst leiðin furðu fljótt. Þarf hér hvorki fararskjóta né leiðsögumann. Fellið segir sjálft til um stefnuna. Eins og dökka þúst ber það við bláleitan Snæfellsnesfjallgarð neðanverðan. Og þó að fjallgarðurinn sjálfur sé stórfenglegur og eftir- tektarverður, verður manni óneitanlega starsýnna á norðurhlið Helgafells, hinn dökka bergvegg, sem rís þverhníptur upp af undirlendinu eins og minnisvarði löngu horfinna alda. Siguröur Skúlason.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.