Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 66

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 66
164 Frádráttur. IÐUNN En svo má segja um niðurstöðuatriðin, sem nefnd voru hér að framan. Svipaðar ályktanir hafa verið dregnar af mörgum rannsóknum á ýmsum stöðum. Af þessum rannsóknum virðist mega vænta þess, að með hjálp þeirra fari náms- og kensluaðferðir stöðugt batnandi. Það er ekki aðeins, að þær bregði ljósi yf>r sildi kensluaðferða alment. I hverri skólastofu eru þær það, sem sjókort og áttaviti er skipum. Þær sýna ástand nemenda og bekkja að vitsmunum og þekkingu. Skóla- ráðunauturinn bendir kennaranum oft á að ýms atriði séu fulllærð, svo að óþarft sé að eyða tíma til þeirra að svo komnu, önnur atriði hafa aftur orðið útundan o. s. frv. Aðkomumaður með reynslu og sérfræði getur oft bent á ýms ráð til bóta, sem dulist hefðu kennaranum, vegna anna hans og vanafestu. Það var t. d. siður ráðunaut- anna að greina þau börn frá, sem þrátt fyrir meðal- greind, samkvæmt vitprófum, voru ekki fulllæs effir tveggja ára nám. Það kom í ljós, að langflest þessara barna höfðu yíirgnæfandi þreifiminni, en heyrnar- og sjónarminni á lágu stigi. Væri skólinn mjög stór, mátti mynda smádeild fyrir þessi börn, annars voru þau sam- einuð úr mörgúm skólum. Þeim voru fengnir kennarar, sem kunnu sérstakar aðferðir við þeirra hæfi. Mest var notuð sú aðferð að láta þau skrifa á veggtöflu og lesa hvert atkvæði um leið. Það, sem þau sáu og heyrðu, mótaðist ekki í vitundinni og gleymdist, en þegar þreif- ingin kom til hjálpar, festust hljóð og hljóðtákn í minni, svo að þau urðu furðu fljótt læs. Hér er því miður ekki rúm til þess að lýsa beinum áhrifum mælinga á kenslu. Það yrði of langt mál, því að þau eru mikil og margháttuð, hvort sem mælingin er framkvæmd af kennara eða ráðunaub

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.