Jörð - 01.10.1941, Blaðsíða 32
þetta, þá þarf, satt að segja, annað hvort æði mikla ein-
feldni eða þá alveg sérstaka tegund hugvitssemi til þess að
þykjast lcoma auga á það, að við ættum sérlega skýlausan
rétt á því, að halda óskertri virðingu okkar óboðnu gesta.
AÐ er þá líka skemmst frá því að segja, að við getum
reitt okkur á, að við höldum henni ekki óskertri.
Sannana fyrir því þurfum við eldci að leita í hrottflutningi
loftskeytapiltanna, — þær sjást greinilega í ýmsu smiáu,
t. d. hávaða að kvöldlagi seint, sem ég man ekki eftir fyrst
i vor af hálfu setuliðsmanna, en sem farið er að verða vart
við, þótt ekki séu að því mikil hrögð. En þótt lítið sé, er
það óheppilegt, þótt ekki væri nema fyrir það, að ef inn-
lendir menn fara að lieyra til setuliðsmanna á þann hátt,
sem þeim sjálfum er nú nýlega bannaður gegn auknum
viðurlögum, þá er liætt við, að þeir þykist liafa fyllsta rétt
til að taka undir með K. N.: „Þegar aðrir þenja kjaft, þá
vil ég tala líka“.
En ljósast tel ég, að tekið verði dæmið af því áliti setu-
liðsmanna, sem byrjað er að gera vart við sig gagnvart
kvenfólkinu hér. Ljósast af því, að eins og kunnugt er,
þeim, sem til þekkja, er konan hvergi í meiri liávegum
liöfð, en meðal engilsaxneskra þjóða; einmitt réttur lienn-
ar til þess, að hún sé tryggð á allan liátt gegn því, að karl-
maður gerist á nokkurn hátt nærgöngulli, en henni gott
þykir, í orði eða verki. Þetta er líka gert með löggjöf, sem
í augum sumra annarra þjóða er í einstaka atriði broslega
— eða jafnvel hættulega hörð. Viðhorfsins, sem þessi lög-
gjöf hefir skapað, gælti fullkomlega hér, fyrst eftir her-
námið, að því er ég sá, en miður nú. Af óskammfeilni of
mikils hluta kvenfólks hér hefir það m. a. leitt, að konur
verða nú alltítt fyrir kalli, annað livort á ensku eða páfa-
gauks-íslenzku. Stéttarmunur er hér ekki svipað því eins
auðsýnn og víða erlendis, svo að fyrir þessu verða jafnt þær
konur, sem ekki hafa til unnið, sem hinar. Þelta er óþægi"
legt, og ekki einungis fyrir konurnar, sem fyrir hrópunum
verða, lieldur fyrir Jjáða aðila, enda myndast lijá flestum
334 jöhð