Jörð - 01.10.1941, Blaðsíða 89
Björn O. Björnsson:
| BÆKUR [
Bækur sendar JÖRÐ
THEÓDÓR ARNBJÖRNSSON: SAGNAÞÆTTIR ÚR HÚNA-
ÞINGI. — 133 bls. Útgefandi (safoldarprentsmiðja hf.,
Reykjavík 1941.
ÞETTA ER MERK BÓK, Jjótt lítil sé.
Hún er merk af því, að hún leiðir fram í dagsljósið
myndir af stórbrotnum íslendingum liðinnar tíðar, seni tekn-
ar voru að hverfa inn i móðu fjarlægðarinnar; mönnum, er vöktu
mikla athygli á sinum tima og i sínu héraði, og sumir þeirra enda
á vörum aljDjóðar enn í dag. Þjóðin má einmitt ekki við að gleyma
slikum mönnum og þvílíkum, þvi að þar koma skýrast fram henn-
ar eigin eðlisþættir, og l)ar fær hver lifandi kynslóð mælikvarða,
til að miða sjálfa sig við. Og er slikt ómissandi, ef um samhengi
við eigin fortíð á að vera að ræða. En það er skilyrði þjóðernis.
Og svo hezt getur hver lifandi kynslóð orðið föðurbetrungur, að
hún þekki rétt þjóðareðlið; skilji, hvað hún á að leggja áherzlu
á í eftirsókn og varnaði. Um það fær hún enga hugmynd, nema
hún þekki menn fortíðarinnar, sjái þá sem lifandi fyrir hugskots-
sjónum sínum og reyni að „brjóta þá til mergjar“.
Þá er bókin merk af þeim lýsingum á reiðhestum og þó eink-
um meðferð reiðhesta, sem hún veitir. Eru þar innan um og sam-
an við athuganir, er virðast fágætar og sýna m. a., á hve hátt stig
ræktunar einstök atriði þjóðlegrar alþýðumenningar getur komizt.
Og er slíkt vekjandi og til fyrirmyndar sveitafólki vorra daga, sem
verður að læra að kannast við ]>á hing stóru köllun sína i islenzkp,
þjóðlífi, að meta að verðugu hvert einstakt atriði nátlúrlegs iaÞ
lenzks sveitalífs og rækta það til fullkomnunar — endurvekja is-
lenzka sveitamenningu á þjóðlegum stofni. Sá stofn hefir eðli til
ágætis myndaplagg um kartöflusjúkdóma heföi vex-ið mei
íslenzkum skýringum, en ekki einungis enskum. Plaggið
er sem sé enskt eða amerískt.
Hafi allir aðiljar sýningarinnar alúðarþakkir fyrir fram-
tak sitt.
JÖRD 391