Sjómannadagsblaðið - 05.06.1988, Page 46
44
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Stjórnendur h júkrunardeilda á fundi. Frá vinstri: Hrafnhildur Sigurjónsdóttir deildarstjóri, Guðrún Áskelsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur, Ingibjörg Helgadóttir hjúkrunarfræðingur, Jónína Nielsen hjúkrunarframkvæmdastjóri, Dagbjört Þórðardóttir hjúkrunar-
fræðingur, Málmfríður Finnsdóttir deildarstjóri, Svanhildur Elintínusardóttir sjúkraþjálfari og María Gunnlaugsdóttir deildar-
stjóri. Hrefna Jóhannsdóttir, hjúkrunarforstjóri heimilisins, var fjarverandi þegar myndin var tekin.
það verði sem minnst rask á háttum
þess við flutninginn hingað. Fólkfær
t.d. alveg að ráða hvernig það kemur
sér fyrir í herbergjum sínu, hvað það
hengir upp á veggina o.s.frv.
Ég kalla Hrafnistu aldrei stofnun
— heldur heimili. Öll okkar viðleitni
miðar að því að fólki líði hér vel, og
finnist það eiga hér heima og starfs-
fólkið leggur sig fram um að örva
vistmenn með hlýlegri framkomu.
Hrafnista hefur sérstöðu í ýmsum
efnum — og ég held að sá mikli
heimilisblær sem hér svífur yfir vötn-
um stafi í og með af því hve margir
starfsmenn heimilisins koma úr lífs-
ins skóla en ekki af langskólabekkj-
um. Hér hefur t.d. verið reynt að
ráða fyrrverandi sjómenn í sem flest-
ar stjórnunarstöður.
Þeir reka stundum inn nefið, þess-
ir menn, sem vilja reikna út alla
skapaða hluti á skrifborðinu sínu, og
segja okkur hvernig hlutirnir eiga að
vera. Einu sinni var okkur ráðlagt í
hagræðingarskyni að hætta að hafa
Magnus Margeirsson yfirmatsveinn, Björn Olafsson matsveinn, Jón Sigurðsson kjöt-
iðnaðarmaður og Kristinn Sigurðsson aðstoðarmaður í kjötvinnslu.
undirskálar undir kaffibolla; þannig
gætum við kannski sparað eina
stúlku í eldhúsinu! En ég sagði þvert
nei. Hrafnista er heimili, ekki kaffi
tería eða stofnun.“
J.F.Á