Sjómannadagsblaðið - 05.06.1988, Page 169
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
167
Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landheigisgæslunnar,
Sjómannadagsblaðið/Björn Pálsson
land, jafnt innan sem utan
landhelgi.
b) Að veita hjálp við björgun
manna úr sjávarháska eða á
landi, svo og að annast aðkall-
andi sjúkraflutninga, ýmist á
eigin spýtur eða í samvinnu við
Slysavarnafélag íslands eða
aðra aðila, sem að björgunar-
störfum vinna.
c) Að aðstoða eða bjarga bátum
eða skipum, sem kunna að
vera strönduð eða eiga í erfið-
leikum á sjó við Island, ef þess
er óskað.
d) Að veita afskekktum stöðum
eða byggðarlögum nauðsyn-
lega hjálp eða aðstoð, þegar
eðlilegar samgöngur bregðast
af ófyrirsjáanlegum orsökum,
svo sem vegna hafíss, snjóa-
laga, ofviðra eða annarra nátt-
úruhamfara.
e) Að sjá um sjómælingar og taka
þátt í hafrannsóknum, fiski-
rannsóknum, botnrannsókn-
um, svo og öðrum vísindastörf-
um, eftir því sem ákveðið kann
að verða hverju sinni.
f) Að tilkynna, fjarlægja eða gera
skaðlaus reköld, tundurdufl,
sprengjur eða aðra hluti, sem
sjófarendum eða almenningi
getur stafað hætta af.
g) Aðaðstoðaviðframkvæmdal-
mannavarna, almennrar lög-
gæslu, lækna-, toll- og vita-
þjónustu, eftir því sem aðstæð-
ur leyfa eða ákveðið kann að
vera sérstaklega.
h) Að tilkynna tafarlaust Skipa-
skoðun ríkisins, ef vart verður
við, að brotin eru lög um eftir-
lit með skipum eða brotnar
reglugerðir, sem settar eru
samkvæmt þeim, eða telji hún
ástæðu til að ætla, að skip sé
ekki haffært.
Af þessari upptalningu má öllum
ljóst vera að verkefni Landhelgis-
gæslunnar eru ærin þótt ekki komi til
„þorskastríða“ með reglulegu milli-
bili.
Það hefur samt sem áður jafnan
verið talið höfuðverkefni Landhelg-
isgæslunnar að verja íslenska lög-
sögu fyrir erlendum fiskiskipum og
einnig íslenskum þar sem veiðar eru
takmarkaðar. Fjárveitingar til stofn-
unarinnar hafa t.d. að miklu leyti
ráðist af því hvað stjórnvöld hafa
haft á prjónunum í landhelgisbarátt-
unni. Og undireinsog200 mílnafisk-
veiðilögsagan var í höfn, þá var stór-
lega dregið úr fjárframlögum til okk-
ar og á aðeins fimm árum , 1976-81,
fækkaði stafsmönnum Landhelgis-
gæslunnar um 40%, eða úr yfir 200
niður í 120.