Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1927, Page 48

Eimreiðin - 01.01.1927, Page 48
28 HÚN VAR SVO RÍK, HÚN LAUFEY eimreiðin í ganginum og braut flöskuna. Hún sótti þá lampann, fór með hann út og lét á hann. Hún kveikti á honum, þegar hún kom inn í ganginn — og svo tók hún að þurka upp af gólf- inu. Þá er hún hafði lokið því, heyrði hún fótatak úti á hlað- inu. Hún hélt annari hendi um lampann, sem stóð í stiganum, og í hinni hafði hún gólfduluna. Glasið á lampanum tók að skjálfa — og hún varð að sleppa honum, svo að það hrykki ekki af. Enginn var í frambænum utan hún — og fótatakið úti á hlaðinu var eina hljóðið, sem heyrðist. Hún þekti þetta fótatak. Það bergmálaði í sál hennar, kallaði fram þjáningar hennar, vakti vonir hennar. Og nú gleymdi hún öllu nema því, að nú yrði hún ein með honum, sem hafði hamingju hennar í hendi sér — og nú yrði hún, nú yrði hún að sigra. Blóðið ólgaði í æðunum, brann í kinnunum — og það suðaði fyrir eyrum henni. Augun voru stærri og myrkari en venju- lega — og hún skalf frá hvirfli til ilja. Þannig stóð hún, þá er Halldór kom í dyrnar. Hann nam staðar með höndina á snerlinum. Hann starði á Laufeyju, stóreygur og fölur. Svo kom vandræðasvipur á and- litið — og hann deplaði augunum ótt og títt. En hann stóð grafkyr, eins og augnaráð Laufeyjar hefði fjötrað hann. Laufey slepti dulunni, sem hún hafði þurkað með upp úr gólfinu, gekk tvö, þrjú skref og studdi fingurgómum vinstri handar á stigakinnina. Það skein í mjallhvítar tennur milli rauðra og votra varanna, og augun lýstu í hálfrökkrinu. — Halldór, eigum við ekki að tala saman í kvöld, eins og við gerðum í sumar? Hún sagði þetta lágt, en það var hiti og þróttur í röddinni. En Halldór svaraði ekki. Hann kiptist lítið eitt við, leit síðan undan og strauk hendinni yfir ennið, eins og hann vildi strjúka burt áhrif augnanna, sem á honum hvíldu. Laufey færði sig nær honum. — Þú heldur kannske ég muni ekki eftir bænum . . . og hestunum og kindunum og kúnum og því öllu saman? Halldór leit snögt á hana. Síðan drap hann höfði og hall- aði sér upp að hurðinni. Draumkendur blær kom yfir andlit honum — og það var sem hann starði í gegnum vegginn,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.