Eimreiðin - 01.01.1927, Blaðsíða 70
50
LEIKHÚS NÚTÍMANS
EIMREIÐIN
leikhúsinu í Kaupmannahöfn eru um ein miljón ljósa, auk margra
og sterkra ljóskastara. Auk loftljósanna, sem eru með öllum
litum sólarljóssins, hafa leikhúsin marga ljóskastara, standljos
og mörg hundruð gólfljós, sem notuð eru í útisýningunum.
Hin svo nefndu rennuljós eru álitin að vera leifar frá síðustu
leikhúsum miðaldanna. Sum leikhús eru að leggja þau niður,
og útlit er fyrir, að þau hverfi smámsaman með öllu.
Ljósaútbúnaður nútímaleikhúsanna er orðinn svo margbrot-
inn og fullkominn, að nærri lætur að hægt sé nú orðið að
sýna öll hin margvíslegu ljósbrigði sólarljóssins, frá fyrsta roða
sólaruppkomunnar til síðasta bjarma kvöldroðans.
Sama er að segja um innisýningarnar. Fátæklegustu þak-
herbergi og dýrðlegustu salir eru nú sýnd með nákvæmni og
samsvörun, með gluggakistum og gluggum, dyrum og dyra-
umbúningum. Oft eru veggir og loft máluð fegurstu málverk-
um og öðru útflúri, er á við efni Ieiksins.
Samsvarandi þessu eru svo innanstokksmunirnir. Dýrar gólf-
ábreiður, silkigluggatjöld, glitrandi ljósahjálmar, borð stólar og
bekkir, klæddir dýrum dúkum, og aðrir verðmætir munir, eru
algengir á leiksviði nútímans.
Vélakerfi leikhússins er orðið svo fullkomið, að leiksviðs-
meistarar síðustu ára leika sér að því að sýna á leiksviðinu
t. d. skip í ólgusjó, með þrumum og eldingum, englaskara
svífandi í skýjum himins o. m. fl., sem fyrir fimmtíu árum var
næstum óhugsandi, að hægt væri að sýna á leiksviði.
í öllum leikhúsum nútímans er viss fjöldi af búningsher-
bergjum. Eru þau oftast umhverfis leiksviðið og á sömu haeð,
en stundum eru þau einnig uppi á annari hæð. Þessi her-
bergi eru höfð eins vistleg sem föng eru á, því þau geta kall-
ast heimili leikandans á leikhúsinu. Þar hefur hann fataskifh
og útbýr gerfi sin, og þar hvílir hann sig á milli þátta eftir
hina miklu andlegu og líkamlegu áreynslu á leiksviðinu.
í herbergjum þessum er því æfinlega legubekkur, fataskáp-
ur og borð með spegli, ásamt stól og þvottaáhöldum og svo
auðvitað ofn.
Leikendasalur nefnist salur sá, sem er á bak við leiksviðið-
Er það einskonar samkomustaður fyrir listamenn og stjórn-
endur leikhússins. Þar safnast þeir saman, þegar eitthvað er