Eimreiðin - 01.01.1927, Blaðsíða 63
eimreiðin
LEIKHÚS NÚTÍMANS
43
— sem er misjafnt eftir því hvaða leikhús á í hlut — hafa
leikhúsin leyfi til þess að selja aðgöngumiðana með hækkuðu,
tvöföldu og jafnvel margföldu verði, þegar þau hafa eitthvað
nýtt eða óvanalegt á boðstólum. Dæmi eru jafnvel til þess,
að við slík tækifæri hafi aðgöngumiðar verið seldir fyrir mörg
hundruð krónur hver.
A síðustu áratugum hefur aðgöngueyrir leikhúsa yfirleitt
verið svo hár, að hinar fátækari stéttir hafa ekki haft efni á
því að sækja leikhúsin. En þar sem góð leikhús eru nú um
allan hinn mentaða heim viðurkend að vera nauðsynlegar og
áhrifamiklar menningarstofnanir, þar sem allir eigi greiðan
aðgang, hefur þeim verið fyrirskipað að hafa hinar svonefndu
alþýðusýningar. Eru það leiksýningar með svo mikið lækkuðu
verði, að einnig fátækari stéttunum sé mögulegt að njóta
bess, sem þessar listastofnanir hafa að bjóða. Eru þessar sýn-
•agar oftast nær á sunnudögum frá kl. 3—6. Virðast þær ná
nijög vel tilgangi sínum, því þær eru undantekningarlaust
nijög vel sóttar.
Hljómlistin og leiklistin hafa frá öndverðu verið mjög sam-
fýmdar, og þær eru það enn. Fjöldamörg af þeim skáldverk-
nm, sem leikhúsin taka til meðferðar, njóta sín ekki nema
nieð aðstoð söngs eða hljómlistar, og þó að fæst leikhús sýni
reglulega söngleiki (Opera) er það þó óhjákvæmilegt fyrir
bau öll að hafa í þjónustu sinni stærri eða minni hljómsveit
til þess að aðstoða við leiksýningarnar.
I leikhúsunum er þessari sveit búinn staður á milli óhorf-
endasviðsins og leiksviðsins. Liggur þessi vistarvera IV2—2
•ttetr. lægra en gólf áhorfendasviðsins, og hefur hún hlotið
nafn af hljómsveitinni, sem á útlendu máli nefnist »Orkestra«.0
Til hliðar við Ieiksvíðið eru tvö herbergi, sem einnig eru til
afnota fyrir hljómsveitina. Annað þeirra er með skápum og
1) Gríska orðið Orkestra var notað yfir kórflokk þann, er var ná-
•engdur forngrísku leikhúsunum. — í rómversku Ieikhúsunum var kór
Þessi síðar meir Iagður niður, og þeim hluta leiksviðsins, sem hann hafði
notað var bætt við áhorfendasviðið, en þessi hluti hélt þó því nafni er
hann hafði hlotið af kórnum, og nefnist Orkestra. Það nafn hefur haldist
1 leikhúsunum fram á vora daga, og heitir því fremsti hluti áhorfenda-
sviðsins, í mörgum þeirra „Orkesterrúm".