Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 12

Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 12
„HANN A FI MINN E R BÚINN A Ð FLYTJA SÉR AÐRA MÖMMU" sína gæti í hugtakaþróun. Ýmsir telja raunar að allir þessir þættir hafi áhrif, en vægi þeirra sé mismunandi eftir því hvaða hugtök um er að ræða, hversu gamall einstak- lingur á í hlut o.fl. (sjá t.d. Gelman og Byrnes (ritstj.) 1991). Hugtök um fjölskylduvensl eru af ýmsum ástæðum einkar vel til þess fallin að prófa kenningar um hlutverk tungumáls annars vegar og hins vegar vitþroska í hugtakaþróun hjá börnum. Þar er fyrst til að taka að þetta hugtakasvið er mjög rökrænt. Fjölskylduvensl eru - gagnhverf („reciprocal"): Ef A er bróðir B, felur það í sér að B hlýtur að vera annaðhvort bróðir eða systir A. Ef P er pabbi A, felur það í sér að A er annaðhvort sonur eða dóttir P. - „gegnvirk" („transitive"): Ef X er afi A, felur það í sér að X er pabbi P sem er pabbi eða mamma A. - afstæð („relative"): Hver einstaklingur tilheyrir mismunandi flokkum ættmenna („multiple class membership") eftir því sjónarhorni sem tekið er. P getur verið pabbi A og B, sonur X og Z, og jafnframt bróðir, frændi o.s.frv. Fullur skilningur á hugtökum um fjölskylduvensl felur í sér skilning á rökrænum eiginleikum þeirra og hlýtur því að vera háður vitsmunaþroska barnanna og hæfni til rökhugsunar. A hinn bóginn virðast þær upplýsingar sem börn fá í gegnum tungumálið og félagslega reynslu einnig ómissandi. Bein skynjun eða reynsla dugar ekki til að skilja merkingu hugtaka um fjölskylduvensl, eins og hugsanlegt væri um ýmis hlut- bundin hugtök (fjölda, þyngd o.fl.) sem þróunarsálfræðingar hafa mikið rannsakað. Bróðir hefur t.d. engin útlitseinkenni, lykt eða hljóð sem greinir hann frá karlmönn- um sem ekki eru bræður neins. Sé tungumálið mikilvægur áhrifavaldur í þróun ein- hverra hugtaka, ætti það að eiga við um hugtök af þessu tagi. Loks ber þess að geta að hugtök á borð við móðir,faðir, afi, amma, bróðir og systir varða afar mikilvægan þátt í lífi sérhvers barns frá upphafi. Meðal fyrstu orða í orðaforða barna alls staðar í heiminum eru orð yfir þessar lykilpersónur (Ruke- Dravina 1976; Leopold 1939). Rannsóknir sýna jafnframt að allmörg ár líða áður en merking þeirra er fullmótuð. Heiti þessarar greinar er tilvitnun í tæplega fjögurra ára snót og ber því glöggt vitni að merking orðsins mamma er ekki sú sama í hennar huga og orðabókin lýsir. Sama má segja um orðin bróðir ogfrændi í máli Bjarts litla, tæplega þriggja ára: „Hann Lárus frændi, pabbi hans Stefáns, er hann ekki bróðir minn?" Stefán er besti vinur Bjarts og hann hefur sömuleiðis mikið dálæti á Lárusi pabba hans. Bjartur kallaði þann síðarnefnda frænda í fyrsta skipti þegar hann smíð- aði handa Bjarti forláta trésverð, og nú vill hann greinilega ganga enn lengra og setja hann í flokk með bræðrum sínum! Ekki eru þeir þó skyldir svo vitað sé, en Bjartur á hins vegar tvo eldri bræður og marga frændur sem honum þykir líka mikið til koma, enda eru þessir menn góðir við hann og umhyggjusamir. Flestir sem eiga samneyti við börn á forskólaaldri kunna dæmi sem þessi þar sem ljóst er að börn eru að þreifa fyrir sér um merkingu algengra frændsemisorða. Hvernig skyldu hugtökin að baki þessum venslaorðum þróast? Á hvaða aldri má búast við að börn hafi þau á valdi sínu? Eru sameiginleg einkenni á hugtökum 10 *
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.