Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 80

Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 80
SKIPT UM SKOÐUN prófum séu þekktar. Að vísu á sá hópur, sem lýkur því sem nefnt hefur verið annað starfsnám og flytur sig að því loknu, tiltölulega létt með bóknám, en hann er of fá- mennur til að hægt sé að draga af honum miklar ályktanir. Upp úr töflunni má reikna að þótt um 17% hafi flutt sig, hafa 2,8% lokið fyrra námi sínu áður. Þessa tölu er athyglisvert að bera saman við þau 5% sem flytja sig eftir að hafa lokið 40 einingum eða meira sem nefnt var hér að framan (hlutfalls- tölurnar eru miðaðar við allan hópinn). En það er athyglisvert að sjá að 16 nemend- ur Ijúka iðnnámi, 5 öðru starfsnámi og 76 stúdentsprófi og flytja sig síðan á aðra braut. Síðasta talan er aðeins um 5% þeirra sem hafa lokið stúdentsprófi, en vekur samt upp spurningar um stöðu hinna brautanna. Gæti verið að stúdentar fari að sækja í auknum mæli inn á starfsnámsbrautir sem erfitt er að ljúka (ekki síst vegna þess hve erfitt er að komast á samning) og stuðla þannig að því að slíkar brautir flytjist um set í skólakerfinu? Það er einmitt athyglisvert í þessu sambandi að þeir námsmenn, sem flytja sig að námi loknu, eiga að öðru jöfnu létt með bóknám (sjá Töflu 6). Þeir skera sig samt ekki úr í tölfræðiathugun, enda eru hóparnir fámennir, svo erfitt er að reiða sig á þetta mynstur. En þetta getur verið mjög afdrifaríkt fyrir þróun skólastarfs eins og hér hefur verið nefnt. Skiptir kyn nemenda máli? í þessu sambandi er eðlilegt að líta til þeirra breyta sem oft skipta máli um námsval og námsframvindu, svo sem kyn (sjá Töflu 7) og búsetu. Kyn skiptir miklu máli um flutning á milli brauta.17 Aðeins tæp 12% stúlknanna flytja sig, en um 23% piltanna, eða helmingi hærra hlutfall pilta en stúlkna. Þetta sýnir svo ekki verður um villst að kerfið blasir öðru vísi við stúlkum en piltum. Tafla 7 sýnir hve fáar stúlkur skrá sig á aðrar brautir en þær sem hér hafa verið flokkaðar sem bóknámsbrautir, en jafn- framt virðist flutningur af þessum brautum hlutfallslega mikill. Hér vakna margar spurningar, því 12% flutningshlutfall er lágt. Hvort það þýðir að stúlkur viti mæta- vel hvað þær vilja þegar í upphafi framhaldsskóla eða hvort þær telja sig hafa í fá hús að venda á starfsmenntunarbrautunum verður ekki ráðið af þeim gögnum sem hér er stuðst við, en sú skýring virðist þó líklegri. Stúlkur eru aðeins 17% þeirra sem upphaflega skrá sig í iðnnám eða annað starfsnám í upphafi framhaldsskólanáms. Sá aragrúi brauta, sem um er að velja innan þessara flokka, freista stúlknanna ber- sýnilega ekki. Jafnvel þær fáu stúlkur, sem velja þessar brautir í upphafi, hafa til- hneigingu til þess að flytja sig þaðan, að því er virðist í ríkari mæli en piltarnir. Hins vegar má segja að þar sem nærri fjórðungur pilta hefur flutt sig þá eru það umtals- verðar tilfærslur, sem sýnir að nemendur skipta í nokkrum mæli um skoðun eftir að í framhaldsskóla er komið, séu valmöguleikar fyrir hendi. Mikill munur á kynjun- um hlýtur að einhverju leyti að stafa af því að piltarnir hafa um fleira að velja sem þeir telja einhvers virði. Búseta skiptir nokkru máli, þar sem meiri flutningar eru á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.18 Tæp 15% nemenda, sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu 17 X2 (1, N=3397) = 75, p<0,001 18 x2(l, N=3397) = 19, p<0,001 78 J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.