Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Síða 16

Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Síða 16
MALÞROSKI BARNA VIÐ UPPHAF SKOLAGONGU rannsóknir á sögubyggingu og samloðun í sögum barna á þessu reki einungist beinst að öðrum þessara þátta, þ.e. annaðhvort að málaðferðunum (samloðun) eða að vits- munalegu hliðinni (sögubyggingu). í þessari rannsókn var jafnframt kannað hvort fylgni væri á milli byggingar eða samfellu í sögum barnanna og samloðunaraðferða. Að mati greinarhöfundar er brýnt að fá svör við þessum spurningum. Um þessar mundir er mikil vakning meðal kennara og uppalenda um hljóðvitund, enda hefur fjöldi rannsókna sýnt fram á mikilvægi hennar í fyrsta lestrarnámi barna (sjá yfirlit t.d. í Snow, Burns og Griffin, 1998). Próf hafa verið hönnuð til að greina sem fyrst börn sem eru í áhættuhópi hvað þetta snertir og búin til þjálfunarprógrömm til að fyrirbyggja lestrarörðugleika. Mun minni athygli hefur beinst að málþroska í víðari skilningi, svo sem orðaforða, orðræðu og pragmatík, sem allt eru þó lykilþættir í lesskilningi og námsárangri. Er- lendis hafa fræðimenn vakið athygli á þeirri hættu að almennur málþroski verði hreinlega útundan á fyrstu skólaárunum vegna ofuráherslu á smæstu einingar máls- ins, hljóð og stafi (sjá t.d. Dickinson og Tabors, 2001; Snow, Burns og Griffin, 1998; Snow og Tabors, 1993). Þjálfun hljóðvitundar er mikilvægur liður í lestrarkennslu, en það augljóst að hún gagnast ekki endilega til að örva málnotkun sem liggur að baki lesskilningi - þ.e. samloðun og samfellu, orðaforða og beitingu málfræði í uppbygg- ingu orðræðu. Að mati greinarhöfundar er afar mikilvægt að þróa matstæki fyrir þessa þætti svo hægt sé að greina sem fyrst börn sem eru í áhættuhópi varðandi þennan þátt málþroska og grípa til viðeigandi úrræða. Á miðstiginu aukast kröfur um að börn læri í gegnum lestur og skilji flókinn texta í ræðu og riti. Það er fullseint í rassinn gripið ef slakur málþroski er þegar farinn að há börnunum á öllum sviðum. AÐFERÐ Þáfttakendur Þátttakendur í rannsókninni voru 165 börn á aldrinum fimm ára og fjögurra mánaða og fimm ára og tíu mánaða. Valdir voru tólf leikskólar á Reykjavíkursvæðinu með það að leiðarljósi að úrtakið endurspeglaði félags- og efnahagslega breidd íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Úr leikskólunum tólf var síðan tekið slembiúrtak 176 barna. Af þeim náðist til 165 eða 94%. í endanlegu úrtaki reyndust vera 91 stúlka og 74 drengir. Börn, sem greind höfðu verið með sértæk þroskafrávik, og börn með annað móður- mál en íslensku, voru ekki með í úrtakinu. Rannsóknartæki Myndabókin Frog, where are you? (Mayer 1969, hér eftir gjarnan nefnd froskasagan) var notuð til að kalla fram sögur þátttakenda. Froskasagan er myndasaga án texta með 24 myndum sem ekkert barnanna hafði séð áður. Myndirnar segja sögu af þrem- ur aðalpersónum, dreng, hundinum hans og froski sem strýkur frá þeim í skjóli næt- ur. Meginhluti bókarinnar rekur í myndum leit þeirra félaga að froskinum, og ýmis ævintýri og hremmingar sem leitin leiðir þá í. í bókarlok sjást þeir finna froska og fara með einn þeirra heim á leið. 14
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.