Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Side 74

Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Side 74
TVÆR STEFNUR - TVENNS KONAR HEFÐIR í KENNSLU UNGRA BARNA Grunnskólakennararnir töldu hins vegar að foreldrar gerðu kröfur til hefðbund- innar akademískrar þjálfunar í fyrsta bekk. Einkum fannst Söru að foreldrar gerðu of miklar kröfur í þessa veru og að töluverður þrýstingur væri frá foreldrum. Hún sagði að reynsla hennar sýndi að börn þyrftu oft bara tíma og tekur sem dæmi börn sem spegla stafi. Það sé óþarfi að gera veður út af því vegna þess að þetta komi bara einn daginn. Henni finnst að í fyrsta bekk eigi að taka hlutina rólega: Mér finnst bara að þau eigi að komast svona á skrið, fái að finna hvað skóli er og fái að dunda sér í að skapa og gera.... auðvitað að leggja inn stafina, mér finnst það, en þau eru bara öll ekki tilbúin. SAMANTEKT OG UMRÆÐA Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að verulegur munur er á starfsháttum, annars vegar í þeim tveimur leikskólum sem skoðaðir voru, og hins vegar í grunnskólunum tveimur. Skipulagið er gjörólíkt og sömuleiðis sá ytri rammi sem starfinu er búinn með lögum og aðalnámskrám. Starfið í grunnskólunum var mun meira skipulagt fyrirfram en í leikskólunum og minni sveigjanleiki var í skólastarfinu. Skóladeginum var skipt niður í 40 mínútna tímabil sem stundum voru felld saman, en frímínútur og sérgreinar settu svip sinn á hvernig skipulagi vinnunnar með börnunum var háttað. Skipulag leikskóladeildanna gerir ráð fyrir hreyfingu barnanna og leik en skólastof- urnar í grunnskólunum voru að mestum hluta þaktar borðum, þar voru einnig töflur fyrir enda stofunnar. Námskráin og kennsluaðferðirnar eru ólíkar á þessum skóla- stigum. í grunnskólunum var meira unnið með allan hópinn en í leikskólunum var hópastarf minnsti hluti starfsins og óbeinar kennsluaðferðir áberandi. Leikskóla- kennararnir lögðu megináherslu á umönnun, félagsleg samskipti, samvinnu, sjálfs- mynd og leik og börnin höfðu töluverð áhrif á það sem þau gerðu í leikskólanum. Grunnskólakennararnir lögðu áherslu á kennslu í lestri og stærðfræði og kennara- stýrð viðfangsefni. f skóla Maríu hafði sú nýbreytni verið tekin upp að kennarar fyrsta bekkjar unnu saman með allan árganginn í húsnæði sem áður hafði verið leikskóli. María og sam- starfskonur hennar voru mjög ánægðar með þetta fyrirkomulag og nýttu þær þann sveigjanleika sem þær höfðu til þess að sérhæfa sig í lestri og stærðfræði og skipta með sér kennslu þeirra greina. Jafnframt gaf þetta skipulag þeim möguleika á að bjóða daglega upp á frjálsan tíma. Þrátt fyrir þessar breytingar á ytra skipulagi í skóla Maríu var innihaldið í náminu hjá grunnskólakennurunum tveimur sambærilegt. Sömu áherslur á námsgeinar, sömu námsbækur og svipað kennslufyrirkomulag. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru í samræmi við fyrri íslenskar rannsóknir (Jóhanna Einarsdóttir, 2001, 2003a; Rannveig Jóhannsdóttir, 1997) og sömuleiðis er- lendar rannsóknir sem sýna mismunandi áherslur skólastiganna (Fuqua og Ross, 1989; Hadley, Wilcox og Rice, 1994; Hains o.fl., 1989; Pramling, Klerfelt og Graneld, 1995; OECD, 2001; Vartuli, 1999). í Ieikskólanum hafa börnin meira ákvörðunarvald yfir því sem þau gera, meira 72
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.