Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Side 91

Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Side 91
—.. VANDA SIGURGEIRSDÓTTIR OG SIF EINARSDÓTTIR Til að kanna viðhorfin nánar voru kennararnir einnig spurðir um hvaða leiðir, af sjö mögulegum, þeir teldu árangursríkastar til að koma í veg fyrir einelti í grunnskóla. Eins og sjá má á mynd 2 nefndu flestir góðan skólabrag og bekkjaranda en einungis þriðjungur eða minna aðra þætti eins og samstarf, þjálfun og fræðslu fyrir kennara og eineltisáætlanir. Greining og viðbrögð við einelti Til að kanna hvernig kennurum gengur að greina og koma auga á einelti voru þeir spurðir fimm spurninga. í ljós kom að kennararnir töldu að meðaltali að 6,9% nem- enda verði fyrir einelti einu sinni í viku eða oftar (s/= 6,3). Rúmur helmingur kennar- anna nefndi 5% eða lægri tölu en aðeins um tíundi hluti kennara taldi að tíðni einelt- is væri hærri en 10%. Þegar kennararnir voru spurðir hvort þeir kæmu auga á það einelti sem viðgengst í bekknum sem þeir kenndu kom í ljós að tæpur helmingur eða um 43% kennaranna sögðust alltaf eða oftast koma auga á eineltið en rúmur helm- ingur eða 57%, sagðist stundum eða sjaldnar koma auga á það einelti sem ætti sér stað (sjá töflu 1 spurningu 29). Þegar spurt var um hvernig kennararnir fengju vit- neskju um eineltið kom í ljós að þeir sögðust oftast hafa komið auga á það sjálfir og næst oftast að aðrir nemendur en þolendurnir sjálfir létu þá vita en í fæstum tilfell- um létu þolendur eineltis kennarana sína vita af því. Kennararnir voru einnig spurðir hvort og hve oft þeir hefðu þurft að taka á einelti í starfi sínu. Um 73,6% (+/-3,8) þeirra höfðu þurft að taka á einelti en 25,8% (+/-3,8) sögðust aldrei hafa þurft þess. Einnig var kannað hversu oft þeir þyrftu að eiga við einelti á hverju skólaári. Tæpur þriðjungur (29,6% +/-3,9) kvaðst aldrei þurfa að taka á einelti og tæp 60% (+/-4,2) þeirra 1-5 sinnum á ári. Um 12% (2,8%) kennara sögðust þurfa taka á einelti oftar en fimm sinnum á ári. Til að kanna hvernig kennurum gengur að taka á einelti voru þeir 385 kennarar, sem sögðust hafa þurft að taka á einelti í starfi, spurðir fjögurra spurninga um hvern- ig þeim hafi gengið. í ljós kom að flestum kennurum fannst þeim ganga vel, eins og fram kemur í spurningu 34 undir liðnum greining og viðbrögð í töflu 1. Þar má sjá að aðeins 5% kennaranna finnst þeim ganga illa að taka á einelti en 62% að þeim gangi alltaf eða oftast vel. Þrátt fyrir þetta finna kennarar í þó nokkrum mæli fyrir kvíða, óöryggi og vanbúnaði þegar þeir þurfa að taka á einelti. í ljós kom að um fjórðungur kennara finnur oftast eða alltaf fyrir kvíða eða óöryggi þegar þeir þurfa að takast á við þessi mál (sjá spurningar 35 og 36 í töflu 1). Einnig kom skýrt fram, eins og sjá má í töflu 1 spurningu 37, að meirihluta kennara fannst þeir stundum eða oftar vera van- búnir að taka á einelti. Einnig var kannað hverjar væru ástæður þess, að mati kennaranna, að nemendur leituðu oft seint eða ekki til þeirra þegar einelti kæmi upp. Nefna mátti fleiri en einn valkost og nefndu flestir kennaranna, eða um 90% (+/-1,4), að nemendur þyrðu ekki að segja frá. Auk þess nefndu rúm 60% (+/-4,2) kennaranna að nemendur sem lagð- ir væru í einelti skömmuðust sín. Athyglisvert er að um helmingur kennaranna nefndi að eineltið yrði verra ef leitað væri til kennara, fjórðungur að nemendur treysti þeim ekki og tæpur fjórðungur að aðgerðir kennara væru árangurslitlar. Til að kanna 89
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.