Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Page 10

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Page 10
184 Uppreistin gegn siðmenningunni. IÐUNN friðarins og sáttfýsinnar. Hann varð að vera tákn hins frjálsa persónuleika, sem unir aleinn með guði sínum. Hann varð að vera tákn þess gagnrýnandi mannvits, sem er hinu „heilaga æði“ allri viðurstygð verra. Hann varð að vera ógermanskur, óheiðinn og andstæður heiðninni. — Pað varð að vera Gyðingurinn. — Það varð að vera Gyðingurinn Jesús. Nú gátu þeir ekki krossfest Jesú. Þá krossfestu þeir Gyðinginn. Og þetta er orsök þess, að Gyðingum er ekki leyft að hverfa frjálsum úr því viti, sem þeim hefir verið búið. Á hvaða táknrænum óvini ætti hið „heilaga æði“ að svala heiðnu, sjálfúðgu hatri sínu, ef ekki væru Gyð- ingar til að misþyrma? Enginn láti sér til hugar koma, að ég taki hér of djúpt í árinni. Kaþólska kirkjan er grimmilega skygn á hið heiðna eðli þýzku byltingar- innar og hina táknrænu endurkrossfestingu Jesú. Það var ekki út í loftið, að furstabiskupinn í Köln bað fyrir Gyðingunum í Þýzkalandi til síðustu stundar. Það var heldur ekki út í loftið, að kardinál-erkibiskupinn í París fól trúuðum inönnum í söfnuðunum að minnast hinna ofsóttu Gyðinga Þýzkalands í bænum sínum. Það var engin grunnúðug góðmenska, sem stýrði gerð- um þessara preláta. En í nafni hinna almennu félags- hugsjóna kirkjunnar risu þeir til mótmæla gegn heiðnu og samanherptu kynstofnsdrambi Nazistanna. Þeir mót- mæltu hinni táknrænu heiðnu árás á sjálfan grundvöll hins gyðing-kristilega siðgæðis- og menningar-arfs. Vér skulum nú kanna lítillega hið sérstaka innihald hins „heilaga brjálæðis" þessarar heiðnu uppreistar. Kjarninn í trúarjátningu hennar er ofstækiskend full- vissa um allsherjar yfirburði arisk-germanska kynstofns- ins. Öll mein Þýzkalands eiga rætur sínar að rekja til þess, að líkamlega og andlega hefir þessi kynstofn

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.