Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 14

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 14
188 Uppreistin gegn siðmenningunni. IÐUNN til hefir verið kallað mannvit og vísindi. Samkvæmt pessari nýju kenningu verður sannleikur ekki ráðinn af hlutrænum gögnum og staðreyndum. Sannleikann öðlast menn með tilfinningunni, sérstaklega tilfinningu ómengaðra Þjóðverja. Mannvitið á að vera „auðmjúk- ur f>jónn“ pessa þýzka innblásturs. Vei þeim, sem dirfist að tefla viti sínu gegn þessum þýzka innblæstri „foringjanna". Og það er reyndar ein meginkenning hins spaka Wolters og lærisveina hans, að hin nýþýzka afstaða altækrar hlýðni til altækrar skipunar útiloki sjálfstæði í hugsun: „Þeim ber að niðurlægja sig takmarkalaust, sem hetjunni þjónar", slík var skil- greining Wolters á anda hins nýja Þýzkalands. Og jiessi andi smýgur nú eins og eitur úr 'fyrirlestra- sölum Nazista-prófessoranna út í hverja stofnun og hvern félagsskap í ríkinu. Það er verið að steypa upp alla gerð félagslegs lífs í Þýzkalandi með furðulegum hraða. Hvarvetna hefir alt skipulag lýðræðis og sjálf- stjórnar verið brotið niður. Þjóðin hefir kosið sér það skipulag, að vera eins og múgur, sem hefir gert sig sinnulausan með æsilyfjum og öskrar og froðufellir og þyrlast um í berserksæði, þegar „foringjarnir“, „hetj- urnar“, styðja á hinn sérþýzka tilfinningaknapp. Ot af svæðum ómengaðs þýzks vitundarlífs á að stjaka öllum,. sem ekki eru Þjóðverjar, ásamt öllum Þjóðverjum, sem eru pólitískir andstæðingar. Enginn hlutur skal þeim heimill á himni eða jörðu, nema sú réttláta tortíming. Héðan í 'frá er það skylda Þjóðverjans, samkvæmt því, er Hitler segir, „ekki að leita vísindalegs sannleika, að svo miklu leyti, sem hann kynni að koma öðrum vel, heldur ástunda það slyndrulaust að þjóna sínum eigin sannleika." Meðal margvíslegra afleiðinga af þessu hrapi alls.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.