Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 18

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 18
'Í92 Uppreistin gegn siðmenningunni. IÐUNN hæfni, sem fólst þeim sjálfum. í sefa. Þeir voru ótrauðir til framkvæmda, nutu þess að beita valdinu, en voru jafnframt barnalega ginkeyptir fyrir ýmsum glæstum hégóma, fjaðurskúfaveifingum og vopnabliki. En um hitt fór þeim eins og taugaveikluðum manni, að þeir áttu ekkert af pví hugarþreki og rólyndi, sem sprettur af kaldrænu sjálfsmati. Hvenær sem eitthvert lítilræði hljóp í baklás, hvenær sem þessi mótvægisvél hökti eitthvað í gangi, var þeim öllum lokið. Pví fór svo, er liðin voru hin svo nefndu uppgangsár (Griinderjahre) eftir fransk-þýzka ófriðinn og kreppan sigldi í kjölfar veltiáranna, að þá brauzt út Gyðinga-andúð, sem reyndi að klína á Gyðinga ábyrgðinni bæði á kauphallar- hruninu og vaxandi uppgangi jafnaðarstefnunnar meðal alþýðu. Kunnugt er mér þó um það af nánustu frænd- um mínum og forfeðrum, að Gyðingar mistu þá eigur sínar eins skjótt og hreinlega eins og hverir aðrir. En þessi andróður magnaðist að heift og hörku árum sam- an, — árum, sem geyma, í annálum sínum meðal annars hið fræga bann Bismarcks gegn jafnaðarmannaflokknum 1878. Þegar hagsældin kom aftur, skóp hún rórri hugi og rökvísari. En öll sú atburðaheild, sem er smámynd af því, sem er að gerast í dag, leiddi það fullkomlega í ljós, að þessir nýtízku Þjúðverjar þjáðust af tauga- veiklun, sem gerði þá vanmáttuga þess að standa undir ábyrgðinni af sínum eigin glöpum og óhöppum. Þeir þurftu að hafa skotspón, skóþurku, — einhvern, sem saka mætti um óhöpp og erfiðleika. Gyðingurinn var handhægur og heppilegur þá eins og nú. Nú er það staðreynd, jafn-þrautstaðfest af almennri athugun sem vísindalegri rannsókn, að einstaklingar, sem geyma með sér djúplæga og helauma vitund um eigið vanmætti, orka ekki að taka á sig ábyrgðina af

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.