Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Page 61

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Page 61
ÍQU.NN Koss milli hafna. 235 Annað skilyrðið er, að hún sé alþýðustúlka, því að engar aðrar en alpýðustúlkur láta kyssa sig án kynn- ingar og algáðar milli hafna. Þetta er ekki sagt þeim til lasts. Öðrum þarf ekki að vera hælt með því — því að eitt boðorðið í siðfræði hinna, er halda sig rikmann- legar, er einmitt að forðast alla skyndi-kynningu við almenning, bæði milli hafna og i höfn, til þess að geta sýnt betur tíguleik sinn og tilbúna fegurð. Enginn deilir á hið ókunna. Þriðja skilyrðið er, að hún sé ung; ekki eldri en 18, 19 eða 20 ára. Eftir þann tíma fer alþýðustúlka í kaup- stað, alin upp í sveit, að stillast. Þá hefir hún hlaupið af sér hornin og kemst að þeirri niðurstöðu við reikn- ingsskil sín við samvizkuna, að fylling lífsins er ekki fólgin í svölun augnabliksins, þegar lögð er í hættu heil framtíð, heilt mannslíf, eitt eða fleiri. Hennar er að leita í þolinmóðri bið eftir hinu mikla dómsorði lífsins: Gifting. Fjórða skilyrðið er, að hún sé lagleg; annars vekur hún ekki athygli og löngun manna, sem ekki bera fyr- irfram áætlaða synd í hjartanu. Þó er þetta veigameira skilyrði fyrir því, að kossinn sé afleiðingalaus. Fríð- leikur hennar kennir henni það, að hún sé ekki á flæði- skeri stödd, þótt hún taki ekki tveim höndum þeim fyrsta, sem býðst. Hann hefir kent henni að velja hið geðfelda og hafna því ógeðfelda og því, sem er and- stætt innrættri siðakend. Þó er hún enn ekki harð- brynjuð föstum ásetningi gegn höfuðóvininum, ef hann kynni að koma til hennar í engilslíki. En ófríðar stúlk- ur, sem uppfylla hin skilyrðin, eru mun ver stæðar. t’ær vekja að eins athygli þeirra, sem nota strand- ferðaskip landsins til að lokka telpur inn í illa hirta II. farrýmis klefa í misjöfnum tilgangi. Menn þeirrar

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.