Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 78

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 78
252 Kirkjan og árásarlið hennar. IÐUNN anna. Hann kemur af trúleysi manna á guð, sem er kærleikur og sannleikur, lifandi og starfandi í heimin- um. Hann kemur af trúleysi manna á guð, sem er rétt- læti, óhagganlegt og eilíft, og ekki verður komist í kring um að lokum. Hann kemur til af trúleysi manna á eilíft líf sálnanna og vegsamlegt og fagurt takmark lífsins. Viljinn er að eins fálm mannsins eftir jrví, sem hann girnist. Sé girnd hans að eins nógu sterk, skortir ekki viljann að uppfylla hana. En maðurinn getur ekki girnst pað, sem hann sér ekki og hefir aldrei lokið upp augun- um fyrir. Hinar frumrænu parfir, mat og drykk, sjá og finna allir og girnast pess vegna og hafa fullkominn vilja á að öðlast. Mátt og völd, skraut og þægindi kunna menn og að meta og hafa þess vegna vilja til að öðlast, enda er ekkert við það að athuga í sjálfu sér. En alt petta girnast einnig dýr merkurinnar, svo að maðurinn stendur á þessu stigi málsins ekkert framar þeim, ])ó að Skúla Guðjónssyni finnist mikið til um og telji, að með þessum staðreyndum sé slegið striki yfir pýðing kirkjunnar. Kirkjunni finst, að maðurinn sé ])á fyrst orðinn maður, ]>egar augun opnast einnig fyrir andlegum verðmætum: fegurð, sannleika og kærleika; pegar hann fer að trúa á þetta, ekki að eins sem stundarprjál eða þægindi, heldur sem dýrmæta perlu, sem alt annað sé gefandi fyrir; eilift líf, sem heimarnir voru skapaðir fyrir, lög- mál eða guðdóm, íbúandi í sjálfri heimsrásinni. Þá fyrst er kirkjan sannfærð um, að mennirnir læri að full- nægja sínum frumrænu pörfum í bróðerni og á göfug- legan hátt, þeir læri að fara með völd lýðnum til blessunar, drekka vín sitt eins og sakramenti og bera skart sitt allri fegurð til sóma.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.