Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 82

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 82
:256 Kirkjan og árásarlið hennar. IÐUNN pjónn tii þess að vefja héðni blekkinga og falsloforða að höfði öreiganna og „með því að halda að lýðnum þeim kenningum, sem gera hann deigan, óframfærinn og tómlátan um baráttuna fyrir bættum hag“. Af þessum orsökum telur svo höfundur, að kirkjunni fari hnignandi og eigi að fara hnignandi. Hin jákvæða tillaga hans er sú, að ríkisvaldið sparki kirkjunni út úr sinni umsjá og skeri niður prestana eða láti pá týna tölunni jafn-óðum og þeir bunkallast á kristilegan hátt; geri alt, sem unt er, tii þess að flýta fyrir því, að kirkj- an lognist út af. IV. Eins og áður hefir verið bent á, liggur eins nærri að álykta, að orsakirnar til hnignunar eða lítils raunveru- legs gildis kirkjunnar á öllum öldum stafi af náttúr- legum óþroska mannkynsins og þar af leiðandi rang- snúnum vilja, fremur en heimskulegri eða þýðingar- lausri kenningu kirkjunnar. Eins og Þórbergur veit, leggja menn ekki hvað gjarnast hlustirnar við sannleik- ans raust. Það, sem menn ekki vilja sjá eða heyra á ein- hverju vissu tímabili, getur samt sem áður verið meira virði en alt heimsins góss og gæði. Eins og hundarnir gelta að tunglinu, þannig gera fávísir menn iðulega hróp að sannleikans boðskap og vilja láta krossfesta eða grýta spámennina. Og þessi ofstopi stafar æfin- lega af þeirri tegund af trúarofstæki eða pólitískum hleypidómum, sem skortir alla víðsýni og skilning. Eins og þegar er orðið auðséð, stafar árás Skúla á kirkjuna af pólitískum ofstopa; hann sér í henni póli- tískan óvin, og mér er grunsamt um, að hið merkilega misskilda olnbogaskot spámannsins Þórbergs Þórðar- sonar sé runnið frá líkum hleypidómum, enda þótt hann

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.