Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Page 94

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Page 94
268 Kirkjan og árásarlið hennar. IÐONN bæði trúarlegar og vitsmunalegar ástæður fyrir breytni sinni. Og þar sem öll tilfinning er þurkuð út fyrir því, að mennirnir séu tengdir saman böndum andiegs skyld- ieika, og þar sem menn trúa heldur ekki á neina andlega ákvörðun, ekkert eilift líf, engan viturlegan tilgang með neinu — þar er vant að sjá, hvers vegna menn skuli vera jafnaðarmenn, hvers vegna hver og einn reynir ekki að skara eld að sinni köku og hrifsa. til sín alt það, sem hann geíur, af gæðum lífsins, án nokkurrar umhugsunar um hag náungans. Auðvitað lýsa hinir grunnhygnustu kommúnistar hagsmunabaráttunni að eins eins og grimmasta stríði, f»ar sem hin kúgaða stétt sameinast eins og hungraðir úlfar til að heimta sinn hlut úr höndum beirra, sem hafa setið yfir honum með misjöfnum heimildum. Að skifta jafnt verður þá að eins sú réttarnauðsyn, sem skapast af því, að enginn ann öðrum meiri hlutar en sjálfum sér. En samt sem áður, þar sem gengið er að öflun eða skiftingu lífsgæðanna einungis með griind og hamförum hinna hungruðu úlfa, þar vilja verða lmipp- ingar áður en lýkur og friðurinn eða réttlætið báglega trygt til frambúðar. Réttlætið verður að vera reist á. styrkari stoðum en öfundarhug þess hungurs, þar sem enginn ann öðrum stærri hita en þess, sem hann sjálfur getur gleypt. Réttlætið verður að vera reist á göfugri og djúpskygnari ástæðum, grundvallast á gnægð hjartans. Pað verður að vera reist á þeirri sann- færingu, að réttlætið sé einnig þýðingarmikill þáttur i eðli alheimsins og eigi rót sína að rekja þangað. Og menn verða að æskja þess og leita þess, ekki að eins hraktir og barðir áfram af óumflýjanlegum eðlishvöt- um, eins og þeirri að seðja hungur sitt, heldur einnig- af því, að þeir skilji það, að þannig her að fullnægja

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.