Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Page 16
14
Árbók Háskóla íslands
fyrir upphaf næsta háskólaárs I5. septem-
ber.
Skipulagsmál
Enn er beðið eftir ákvörðun borgaryfir-
valda um skipulagstillögu háskólans á mið-
svæði háskólalóðar. Ekki virðast afköstin
hafa verið mikil á bænum þeim í þessum
efnum, og er vonandi, að hinir nýju vendir
sópi betur. Þess má geta, að tillaga háskól-
ans er upphaflega unnin af prófessor Alvar
Aalto, sem skipulagði fleiri háskóla en
nokkur annar maður í heiminum.
Viðræður standa fyrir dyrum við borgar-
yfirvöld um land Tilraunastöðvar háskólans
í meinafræði að Keldum. Hef ég hreyft
þeirri hugmynd við borgarstjóra og fleiri
aðila, að unnið verði að því að auka tengsl
háskólans við atvinnulífið og atvinnustarf-
semi í borginni yfirleitt með því að laða
fyrirtæki að háskólanum, með því að bjóða
þeim lóðir, húsnæði og þekkingu. Hefur
þetta tekist vel annars staðar, eins og í
Norður-Finnlandi og Bretlandi. Er þetta
kannski eina leiðin til þess að koma hér upp
rafeindaiðnaði, efnaiðnaði, lyfjagerð og
fleiru.
Þá vil ég vekja athygli á því, að enda þótt
háskólanum séu ætluð landssvæði í
Reykjavík, er ekki þar með sagt, að hann
muni nýta þau á einhvern þann hátt, sem
ekki komi borginni til góða. Auk þeirrar
atvinnuuppbyggingar, sem ég nefndi, er til
umræðu, að byggt verði yfir Náttúrugripa-
safn á háskólalóð, og lauslegar viðræður
hafa farið fram um sameiginlega íþróttaað-
stöðu á lóð háskólans.
Endurmenntun
Fyrir háskólaráði liggur nú tillaga um
starfsemi á sviði endurmenntunar í sam-
vinnu við Bandalag háskólamanna og
nokkur aðildarfélög þess. Starfsemi af þessu
tagi er nauðsynleg, og hafa nokkrar deildir
háskólans gert tilraunir á þessu sviði. En
betur má ef duga skal í heimi stórfelldra
breytinga.
Samstarf við erlenda háskóla
Samstarf við erlenda háskóla hefur í
flestum efnum verið með ágætum. Hafa
þeir tekið við íslenskum námsmönnum í
grunnnám og framhaldsnám. Hafa sumir
skólar á Norðurlöndum lagt sig svo í líma
við að taka við íslenskum námsmönnum, að
jaðrar við brot á lögum viðkomandi lands. Á
þessu ári voru gerðir sérstakir samningar við
þrjá háskóla í Bandaríkjunum, Washing-
ton-háskóla í Seattle, Colorado-háskóla í
Fort Collins og Minnesota-háskóla, um
ívilnanir í skólagjöldum og skipti á kennur-
um. Er samningurinn við Minnesota-há-
skóla langvíðtækastur, og ríkir einstakur
áhugi þar vestra á því að vinna að sameig-
inlegum verkefnum og greiða götu hvor
annars. Sennilega verður að fara svipaða
leið í Bretlandi og Kanada, þar sem skóla-
gjöld hækka óðum.
Velunnarar háskólans
Stytta Ásmundar Sveinssonar af Sæ-
mundi á selnum stendur fyrir framan Aðal-
byggingu háskólans. Var hún gjöf frá Stúd-
entafélagi Reykjavíkur á 50 ára afmæli há-
skólans 1961, ekki hvað síst fyrir atbeina
Péturs heitins Benediktssonar bankastjóra.
1. desember s.l. færði Stúdentafélag
Reykjavíkur háskólanum að gjöf einkarétt á
notum listaverksins sem bréfmerkis. Er
þessi vináttuvottur háskólanum mikils virði.
I gær barst Háskólabókasafni stórgjöf frá
dr. med. Jóni Steffensen, prófessor emerit-
us. Ánafnar hann, í sínu nafni og látinnar
eiginkonu sinnar, frú Kristínar Björnsdóttur
Steffensen, safninu einstæðan bókakost
sinn á sviði heilbrigðismála, og skal safnið
flytjast í Þjóðarbókhlöðu þegar þar að
kemur. Þá fylgir húseignin Aragata 3 með í
gjöfinni, og skal andvirði hennar varið til
frekari bókakaupa til að tryggja aðstöðu
fyrir þá sem stunda vilja rannsóknir á sviði
heilbrigðismála. Sýnir dr. Jón Steffensen,
sem hér er staddur, háskóla sínum með
þessu móti mikinn heiður. Er ég viss um, að