Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Side 17
Ræður rektors Háskóla íslands
15
læknisfræðiritin eru Háskólabókasafni
kærkomin vítamíninngjöf, því það þjáist
mjög af næringarskorti um þessar mundir.
Færi ég dr. Jóni Steffensen hugheilar þakkir
háskólans fyrir framtakið og minnist frú
Kristínar með virðingu og þökk.
Ágœtu kandidatar.
í innsigli háskóla ykkar er höfuðmynd af
Pallas Aþenu, sem talin var verndari og
frömuður allrar andlegrar viðleitni, visku og
snilli. Henni eru og þakkaðar alls konar
uppfinningar, sem eflt hafa menningu og
velgengni. Ykkur hefur eflaust sýnst sitt
hverjum um hin glóandi augu hennar, eld-
ingu og ægishjálm. Hún er heldur ekki öll
þar sem hún er séð. Hún er ekki einungis
herská og hræðileg skjaldmær, heldur styð-
ur hún hvers konar verklegar menntir og er
verndargoð handiðnaðarmanna. Hún er líka
hörð húsfreyja, enda fann hún upp beislið
til tamninga. Þið hafið orðið að ganga í
gegnum ýmsar þrekraunir og alls konar
próf, á sinn hátt eins og Trójufarar forðum.
Þeirri þekkingu og reynslu, sem þið hafið
hlotið í háskólanum, er í mörgum greinum
ætlað að gera ykkur hæfari til að bregðast
við óvæntum aðstæðum, glíma við ný verk-
efni og fara ótroðnar slóðir. Háskólanem-
um, hvað þá heldur menntaskólanemum.
gengur tíðum illa að skilja tilgang strang-
fræðilegra iðkana og þjálfunar í aðferðum,
sem verður ekki beitt þegar í stað við lausn
hagnýtra viðfangsefna. Yfirleitt miðast nám
hér við það, sem gerist í bestu háskólum
erlendis, eftir því sem við á. Tryggir það
gæði hliðstæðra prófa og heldur dyrunum
opnum fyrir þeim, sem vilja stunda fram-
haldsnám. Það ætti líka að vera hlutverk
ykkar að sjá til þess, að „bakveiti“ verði til
skólans um það, hvernig ykkur hefur reynst
námið í þeim störfum, sem þið veljið ykkur,
eða því framhaldsnámi, sem þið farið í.
Reyndarsegir í Hávamálum:
Vits er þörf
þeim er víða ratar,
dælt er heima hvað;
að augabragði
verður sá er ekki kann
og með snotrum situr.
Og er hann ekki fallegur hinn forni vitn-
isburður um Sturlu Þórðarson, þegar sagt er,
að hann hafi verið manna „alvitrastur og
hófsamastur“?
Ég vona að þið sýnið fjölskyldu ykkar og
þjóð ræktarsemi og spyrjið sjálfa ykkur,
hvað þið getið lagt af mörkum fyrir hana,
fremur en að gera kröfur til hennar. Haldið
göngu ykkar áfram ótrauðir:
Því sá, sem hræðist fjallið
og einlægt aftur snýr,
fær aldrei leyst þá gátu,
hvað hinum megin býr.
Guð fylgi ykkur á lífsleiðinni.