Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1982, Síða 20
18
Árbók Háskóla íslands
spili, hinn ágætasti gripur. Var orgelið vígt
við messu stúdenta 1. desember, og annaðist
biskupinn yfir íslandi, herra Pétur Sigur-
geirsson, vígsluna. Honum til aðstoðar voru
háskólarektor og deildarforseti guðfræði-
deildar.
Nýja orgelið stendur niðri í kapellunni,
hægra megin séð frá altari, og er þar með til
betri aðstoðar við almennan sálmasöng en
gamla orgelið, sem var staðsett á lofti kap-
ellunnar
Var gamla orgelið selt, og er kapelluloftið
nú nýtt sem kaffistofa fyrir nemendur og
kennara guðfræðideildar. í því skyni var
herbergið mjög smekklega búið.
Gísli Sigurbjörnsson forstjóri afhenti guð-
fræðideildinni að gj’öf 20 eintök af Passíu-
sálmunum í febrúar 1982. Eru eintökin öll
merkt háskólakapellunni með gylltu letri.
Nokkuð hefur verið hugað að umbótum á
búnaði kapellunnar. Er í ráði að koma fyrir
lausu altari, er staðsetja megi fyrir framan
gráður, en ennfremur að koma fyrir lespúlti.
Yrði sá búnaður til að bæta aðstöðuna til
helgisiðatilrauna.
Kapellan er mikið notuð á vetrum til
helgihalds, sem guðfræðinemar skipuleggja
að mestu sjálfir.
Fundur deildarforseta guðfræðideild-
anna á Norðurlöndum
1 ágústmánuði 1982 var haldinn í
Reykjavík fundur forseta guðfræðideild-
anna á Norðurlöndum. Var á þeim fundi
rætt um skipulag guðfræðináms á Norður-
löndum og um samstarfsmálefni deildanna.
Af þessu tilefni afhenti forseti guðfræði-
deildar Oslóarháskóla, prófessor Nils E.
Bloch-Hoell, guðfræðideild Háskóla fslands
að gjöf rúmlega 100 bækur, er allar hafa
verið skráðar í háskólabókasafni.
Aðsókn að deildinni
Aðsókn að guðfræðideild hefur verið
nokkuð jöfn undanfarin ár og rainnkaði
ekki, enda þótt ljóst væri, að um offramboð
á guðfræðingum væri orðið að ræða, miðað
við þarfir þjóðkirkjunnar og fríkirkjusafn-
aðanna fyrir presta. Sennilega nýtur guð-
fræðideildin þess, að hún er talin veita al-
menna menntun, sem ekki er rígbundin við
starfsréttindi.
Þetta álit þarf að hafa í huga í sambandi
við skipulag námsins í deildinni.
Félag guðfræðinema hefur starfað mjög
ötullega. Fastur liður í starfi þess eru ferða-
lög út á land, þar sem prestar og söfnuðir
eru heimsóttir. Þá hefur félagið staðið fyrir
heimsóknum í söfnuði í Reykjavíkurpró-
fastsdæmi.Félagguðfræðinemahefurskipu-
lagt helgihald í kapellunni og ennfremur
annast bænagjörð á nokkrum elliheimilum
borgarinnar.
Einar Sigurbjörnsson
Læknadeild og fræðasvið hennar
Áfangar
1760
Þegar Bjami Pálsson var skipaður land-
læknirárið 1760, varhonum íerindisbréfinu
lögð sú skylda á herðar að kenna að minnsta
kosti fjórum „ungum, greindum, námsfús-
um og siðprúðum“ mönnum læknisfræði
sem síðar gætu starfað undir hans leiðsögn í
sitt hverjum landsfjórðungnum. Yfirvöld-
um var sem sé þá strax ljóst að einum lækni
væri ofviða að gegna landinu öllu.
Það fór eftir sem til var ætlast, fjórir urðu
þeir sem tóku próf hjá Bjarna, sá síðasti